Hvetur Hörpu til að „aflýsa viðburðinum í nafni mannréttinda og öryggis minnihlutahópa“

Viðar Þor­steins­son skorar á Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur að koma í veg fyrir að aft­ur­halds­mað­ur­inn Douglas Murray fái að halda fyr­ir­lestur í Hörpu. „Teng­ingar þess­ara afla við hrylli­lega ofbeld­is­verkn­aði eru öllum kunnar,“ skrifar hann.

Hvetur Hörpu til að „aflýsa viðburðinum í nafni mannréttinda og öryggis minnihlutahópa“

Viðar Þor­steins­son, aktí­visti sem starfar sem fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hefur skrifað Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Hörpu, bréf þar sem hann hvetur hana til að koma í veg fyrir að aft­ur­halds­mað­ur­inn Douglas Murrey fái að halda fyr­ir­lestur í Hörpu.

„Mál­flutn­ingur Murrays er klæddur upp sem mál­efna­leg umræða, en engum dylst að um er að ræða hat­urs­orð­ræðu sem ógnar öryggi fólks og á ekki heima í heil­brigðri sam­fé­lags­um­ræðu,“ skrifar Viðar.

„Við­burð­ur­inn er skipu­lagður af aðilum sem áður fluttu inn hægriöfga­mann­inn Robert Spencer, reyndu að flytja inn kyn­þátta­hat­ar­ann Tommy Robinson og reyndu á dög­unum að efna til þjálf­unar í vopna­burði fyrir skoð­ana­bræður sína. Teng­ingar þess­ara afla við hrylli­lega ofbeld­is­verkn­aði eru öllum kunnar.“

Viðar hefur birt tölvu­póst­inn í heild á Facebook og hvetur aðra til að senda fram­kvæmda­stjór­anum sams konar áskorun. „Ég vona inni­lega að þú fyrir hönd Hörpu aflýsir við­burð­inum í nafni mann­rétt­inda og öryggis minni­hluta­hópa. Það væri mik­ill blettur á Hörpu ef þessi við­burður yrði kveikja að ofbeld­is­verkn­aði gegn inn­flytj­endum eða öðrum sem eiga undir högg að sækja,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár