Segja Ísraelsríki vera málsvara frelsis og friðar í Miðausturlöndum

Ungir menn hafa gengið um götur Reykja­víkur í dag með ísra­elska fán­ann og dreift kynn­ing­ar­efni til stuðn­ings Ísra­els­ríki.

Segja Ísraelsríki vera málsvara frelsis og friðar í Miðausturlöndum

Þrír ungir menn hafa arkað um götur Reykja­víkur í dag með ísra­elska fán­ann og dreift kynn­ing­ar­efni þar biðlað er til almenn­ings að styðja mál­stað nýstofn­aðs félags sem ber heitið Ísland-Ísrael. 

Á blaði sem menn­irnir dreifa er full­yrt að Ísrael sé „land í mið-aust­ur­lönd­unum sem heldur upp vest­rænum gildum eins og lýð­ræði, frelsi ein­stak­lings­ins og rétt­indi bæði kvenna og sam­kyn­hneigðra.“ Ísraelar vilji frið en séu umkringdir „löndum sem vilja gjör­eyða þeim og hefur Ísrael tvisvar unnið stríð sem háð var gegn þeim.“

Samkvæmt félag­inu hefur Ísrael aldrei nokkurn tím­ann lýst yfir stríði á hendur neinum „frekar en við“.

„Öll stríð sem Ísrael hefur verið í voru til að verja sig,“ segir þeir.

Svo virð­ist sem mál­staður félags­ins sé sá sami og félags­ins ZION Vinir Ísrael, en lítið hefur heyrst til þess und­an­farin ár og er vef­síða þess óvirk.

Aðspurðir hve margir til­heyri félags­skapnum segja menn­irnir að félagið telji á annað hund­rað manns. „Félagið Ísland-Palest­ína er virkt, af hverju ætti þetta félag ekki að vera virkt?“ segir einn mannna.

„Hefur Rúv tekið rétta ákvörðun
um að hlusta ekki á bull og lygar“

„Takk fyrir að sýna áhuga á okkar góða mál­stað að verja Frelsið,“ stendur á blað­inu.

Á Facebook síðu félags­ins er fólk hvatt til að horfa á Eurovision-keppn­ina sem er nýaf­staðin. „Eins og allir vita hefur Rúv tekið rétta ákvörðun um að hlusta ekki á bull og lygar með því að taka þátt í Eurovision sem á að halda í Ísrael í maí 2019. Fögnum þessu og óskum Íslandi góðs gengis.“

Einnig er aug­lýstur við­burður undir yfir­skrift­inni „Stöndum saman um frið fyrir Ísrael“. Um er að ræða stofn­fund félags­ins sem hald­inn var á Radison Blu Saga Hotel, mið­viku­dag­inn 27. mars síð­ast­lið­inn.

Á fund­inum voru eft­ir­far­andi atriði aug­lýst til umræðu „Fölsuð mynd Ísrael á Norð­ur­lönd­unum. Af hverju Ísland gerði skelfi­leg mis­tök þegar það við­ur­kenndi Palest­ínu sem ríki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár