Flugumenn, silkimjúkur djass og kræsingar sem listaverk

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 9.–23. maí.

Flugumenn, silkimjúkur djass og kræsingar sem listaverk

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

BlacKkKlansman

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 10.–20. maí
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Ósk­arsverð­launa­myndin BlacKkKlansman rataði ekki í íslensk kvik­mynda­hús á sínum tíma, en hún fjallar um sönnu sög­una af svörtum lög­reglu­manni sem tekst að kom­ast í raðir Ku Klux Klan hryðju­verka­sam­tak­anna, og verða umdæm­is­stjóri á því svæði þar sem hann býr.  Kvik­myndin er upp­gjör við þann ras­isma sem var tröll­ríð­andi á átt­unda ára­tugnum í Banda­ríkj­unum og þörf áminn­ing á að hann lifir enn góðu lífi í dag.

Hnallþóran

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 26. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sigurrós Guðbjörg Björns­dóttir og Berglind Erna Tryggva­dóttir eru í rann­sókn­ar­leið­angri; þær dýfa sér ofan í sögu íslenskra matar- og bakst­urs­hefða og reyna að finna hnall­þór­unni nýtt hlut­verk í síbreyti­legu lands­lagi íslenskrar mat­ar­menn­ingar. Þar eru settar fram til­raunir á hnall­þór­unni sem list­hlut, í tví­víðu og þrí­víðu formi, jafnt því sem áhorf­endur geta skoðað upp­skriftir og fróð­leik sem rann­sókn­arteymið hefur sankað að sér.

Norðurmýramegin við Klambratún

Hvar? Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn
Hvenær? 17. maí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Karl Olgeirs­son hlaut nýlega Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem laga­höf­undur árs­ins og fyrir plötu árs­ins í jazzflokki, en hann flytur verð­launa­plötu sína, Mitt bláa hjarta, sem hann hóp­fjár­magn­aði í fyrra. Sigríður Thorlacius mun syngja lögin ásamt höf­undi sem einnig leikur á píanó. Þeim til full­tingis verða Jóel Pálsson sax­ó­fón­leik­ari og Þor­grímur Jónsson á kontra­bassa.

Iður

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 17., 19. og 23. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Iður er nýtt íslenskt tón­leik­hús­verk byggt á sönnum atburðum um Mark Kennedy, breskan lög­reglu­mann og fjöl­skyldu­föður, sem vann sem upp­ljóstr­ari krún­unnar innan raða aktí­vista. Þegar verkið ger­ist standa ensk yfir­völd í stappi við rót­tæka aðgerð­ar­sinna. Í Iður er velt upp spurn­ingum um raun­veru­leik­ann, sjálfs­mynd og stað okkar í til­ver­unni. Inn í verkið flétt­ast aríur og kór­lög við texta eftir end­ur­reisn­ar­skáldið John Donne.

Mjúk lending

Hvar? Nýlista­safn Íslands
Hvenær? Til 26. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í þess­ari útskrift­ar­sýn­ingu MA nema í mynd­list Lista­há­skóla Íslands kvísl­ast átta sjálf­stæðar nálg­anir, sam­ein­ast og stundum sker­ast þær. Kjarni þess sem lista­menn­irnir kanna í verkum sínum er í raun hvað það þýðir að vera mann­eskja í heimi gegn­sýrðum af félags­legum, menn­ing­ar­legum og vist­fræði­legum vanda­málum. Titill sýn­ing­ar­innar, Mjúk lend­ing, vísar í tíma­bundna jarð­teng­ingu; ekki rót­gróna, heldur sveigj­an­lega líkt og umsemj­an­legan loka­frest. 

Gröf

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 16. maí til 23. júní
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Gunnar Jónsson er fæddur í Reykja­vík en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Í verkum sínum rann­sakar hann eigin upp­runa, sjálfs­mynd og umhverfi. Gunnar vinnur meðal ann­ars með vídeó, ljós­myndir og tón­list. Hann er virkur í ýmsu félags­starfi og er meðal ann­ars vara­maður í stjórn Reyk­vík­inga­fé­lags­ins á Ísafirði.

Grúska Babúska útgáfutónleikar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 22. maí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Til­rauna­kennda raf­þjóð­laga­hljóm­sveitin Grúska Babúska gaf út plöt­una Tor síð­ast­lið­inn sept­em­ber, en platan er inn­blásin af enskum mið­alda­sögum og goð­sögnum eins og um Artúr kon­ung. Þetta eru (mjög) síð­búnir útgáfu­tón­leikar, en Grúskan á það til að fara sínar eigin leiðir. Póli­tíska brim-indí sveitin Bagdhad Brothers kemur einnig fram, en hún hefur spilað víðs vegar síð­asta árið og er í mik­illi sókn.

Thibaudet og Beethoven

Hvar? Harpa
Hvenær? 23. maí kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: Frá 2.500 kr.

Franski píanist­inn Jean-Yves Thi­baudet hefur um ára­tuga skeið verið einn sá fremsti á heims­vísu. Á þessum tón­leikum mun hann spila með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands „Vetr­ar­himin“ eftir Kaiju Saariaho, einu marg­verð­laun­að­asta sam­tímatón­skáldi Norð­ur­landa, „Leynd­ar­dóm ljóss­ins“ eftir skoska tón­skáldið James Macmillan og svo „Hetju­hljóm­kvið­una“ eftir Beethoven, verk sem er inn­blásið af ímynd hetj­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár