Það er eitthvað bogið við Maríu, óséð verk og fjölskyldusirkús

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 23. apríl–9. maí.

Það er eitthvað bogið við Maríu, óséð verk og fjölskyldusirkús

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu þrjár vik­urnar.

ÍRiiS, IDK IDA, MSEA

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 24. apríl kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Á þessum til­finn­inga­þrungna mið­viku­degi flytja þrjár kynn­gi­magn­aðar raf­tón­list­ar­konur tóna sína. ÍriiS spilar takt­fasta raf­tón­list sem er undir áhrifum darkwave-stefn­unnar. IDK IDA er dönsk tón­list­ar­kona sem hefur lengi verið virk í íslenskri jað­ar­senu, en í flutn­ingi hennar takast á hið vél­ræna og líf­ræna. MSEA er kanadískur lista­maður sem hefur skapað flók­inn hug­ar­heim þar sem feg­urð og óþæg­indi tengj­ast órjúf­an­legum böndum.

Crescendo

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 27. apríl kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Í þessu nýja dans­verki sækir dans­höf­und­ur­inn Katrín Gunn­ars­dóttir í sögu lík­am­legrar vinnu kvenna og sér­stak­lega til end­ur­tek­inna hreyf­inga og söngva, með það að mark­miði að skapa aðstæður fyrir nána kven­læga sam­veru, sam­hug og sam­runa. Þrír lík­amar flytja sól­ó­verk í sam­ein­ingu, sam­ofin í flæði síbreyti­legra hreyf­inga, söngva og hlust­unar. Sýningin fékk sex til­nefn­ingar til Grímu­verð­laun­anna 2018, meðal ann­ars fyrir dans­höf­und og dans­ara árs­ins.

Allt fínt

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? Til 28. apríl
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í mál­verkum Örnu Ótt­ars­dóttur vekja mjúkir og mildir bleikir litir fram áþreif­an­leg hug­hrif. Áferðir minna á blíða snert­ingu, hrá­leika og óorð­aða innri til­finn­ing­ar­heima. Arna hefur und­an­farin ár helgað sig vefn­aði og mynd­málið sækir hún í hvers­dags­leik­ann, skissu­bækur sínar, og helg­ast valið ekki af fág­aðri útfærslu frum­mynd­ar­innar, heldur frekar mögu­leika þess til frek­ari til­rauna og úrvinnslu.

There's Something About Mary – Föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 3. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Árið 1998 voru Cameron Diaz og Ben Stiller í topp­formi, en þau klifu efst á alla vin­sælda­lista og urðu á vörum allra, þökk sé eft­ir­minni­legu róm­an­tísku gam­an­mynd­inni There’s Somet­hing About Mary. Eftir mis­heppnað stefnu­mót í mennta­skóla hitt­ast per­sónur Diaz og Stillers að nýju þrettán árum seinna, þökk sé einka­spæj­ara sem endar á því að falla sjálfur kylli­flatur fyrir Mary.

Þetta hefur aldrei sést áður

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? 4.–12. maí
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Lista­safn Reykja­víkur hefur allt frá árinu 2003 hýst útskrift­ar­sýn­ingu hund­ruða nem­enda á BA-stigi í mynd­list­ar­deild og hönn­unar- og arki­tekt­úr­deild Lista­há­skóla Íslands. Verkin end­ur­spegla nám, rann­sóknir og list­sköpun nem­end­anna síð­ustu þrjú ár. Á sýn­ing­unni getur að líta mynd­list, graf­íska hönnun, arki­tektúr, fata­hönnun og vöru­hönnun. 

Í ljósum loga

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 5. maí kl. 15.00 & 17.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Glitr­andi akró­batík, sjálf­lýsandi loft­fim­leikar, skín­andi djöggl og myrk­fælnir trúðar munu sjást í Tjarn­ar­bíói. Sýningin Í ljósum loga er vor­sýn­ing Æskusirkusins 2019, en við­fangs­efni hennar er sam­spil ljóss, myrk­urs og sirkus. Sýningin er sköpuð af fram­halds­deild Æskusirkusins undir leið­sögn kenn­ara. Í ljósum loga er fjórða sjálf­stæða sýn­ing Æskusirkusins, en sirku­skrakk­arnir hafa und­an­farin ár komið fram á Barna­menn­ing­ar­há­tíð og menn­ing­arnótt.

Einkasýning Janice Kerbel 

Hvar? i8
Hvenær? til 25. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk úr sýn­ingum Janice Kerbels, Brawl og Sink, eru til sýnis í i8. Fyrr­nefnda sýn­ingin sam­anstendur af gríð­ar­stórum silki­þrykkum þar sem koma fyrir sagn­orð og nafn­orð í ólíkum let­ur­gerðum sem eru lögð niður og jafn­vel sáldrað um por­trett­laga örk­ina. Í þeirri síð­ar­nefndu nálg­ast Kerbel lögun og áferð papp­írs­ark­ar­innar líkt og um fer­hyrnda sund­laug væri um að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár