Hafa áhyggjur af her­þjálfun hægri­öfga­manna á Íslandi

„Við hvetjum stjórn­endur hót­els­ins til að end­ur­skoða þá ákvörðun að heim­ila afnot af sölum sínum fyrir slíka starf­semi,“ segir for­maður Samtaka hern­að­ar­and­stæð­inga.

Hafa áhyggjur af her­þjálfun hægri­öfga­manna á Íslandi

Gutt­ormur Þor­steins­son, for­maður Samtaka hern­að­ar­and­stæð­inga, segir áhyggju­efni að öfl sem daðri við verstu birt­ing­ar­myndir kyn­þátta­hat­urs og útlend­inga­andúðar skuli óáreitt fá að skipu­leggja nám­skeið á hót­eli í miðri Reykja­vík með áherslu á vopna­burð og her­mennsku.

Stundin greindi frá því í dag að öryggis- og her­skól­inn European Security Academy Iceland hefði boðað til kynn­ing­ar­fundar um nám­skeið í vopna­burði, örygg­is­gæslu og skyldum verk­efnum í Reykja­vík. Rætt var við þátt­tak­endur sem vilja nýta sér nám­skeiðið til að verj­ast inn­flytj­endum sem koma til Íslands. „Ef þetta heldur svona áfram í Evrópu þá endar þetta með skot­vopnum. Því miður,“ sagði einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar.

Samtök hern­að­ar­and­stæð­inga hafa for­dæmt við­burð­inn á Facebook. Gutt­ormur bendir á að í síð­asta mán­uði hafi öfga­maður og útlend­inga­hat­ari framið hryðju­verk á Nýja-Sjálandi þar sem fimm­tíu manns voru myrtir. „Glæpur þessi hefur orðið mörgum íhug­un­ar­efni, enda hafði Nýja-Sjáland til þessa verið talið frið­sælt og ólík­legur vett­vangur slíkra voða­verka. Viðbrögð sam­fé­lags­ins hafa falið í sér ein­dregna höfnun á ofbeldi og hatri,“ segir hann og bætir því við að fyr­ir­tækið sem heldur nám­skeiðið hafi meðal ann­ars þjálfað öfga­hægri­hópa í Úkraínu. „Við hvetjum stjórn­endur hót­els­ins til að end­ur­skoða þá ákvörðun að heim­ila afnot af sölum sínum fyrir slíka starf­semi,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynþáttahatur

Íslenskir nýnasistar lokka „stráka sem eru í sigtinu“ í dulkóðaða netspjallhópa
Afhjúpun

Íslenskir nýnas­istar lokka „stráka sem eru í sigt­inu“ í dulkóð­aða net­spjall­hópa

Meðlimir Norð­ur­vígis reyna að fela slóð sína á net­inu. Yngsti virki þátt­tak­and­inn er 17 ára, en hat­urs­orð­ræða er kynnt ung­mennum með gríni á net­inu. Aðild­ar­um­sóknir fara með tölvu­pósti til dæmds ofbeld­is­manns sem leiðir nýnas­ista á Norð­ur­lönd­unum. Norrænir nýnas­istar dvöldu í þrjá daga í skíða­skála í Blá­fjöllum fyrr í mán­uð­inum.
Nýnasistasíðan hýst af huldufélagi á  Klapparstíg í eigu skattaskjólsfélags
FréttirKynþáttahatur

Nýnas­ista­síðan hýst af huldu­fé­lagi á Klapp­ar­stíg í eigu skatta­skjóls­fé­lags

Nýnas­ista­síða með íslensku léni dreifir hat­ursá­róðri gegn gyð­ingum og öðrum þjóð­fé­lags­hópum. Tón­list­ar­mað­ur­inn Stevie Wonder og stjórn­mála­mað­ur­inn Anthony Weiner níddir á síð­unni vegna upp­runa síns eftir að hún fékk íslenskt lén. Slóð síð­unnar á Íslandi er dul­ar­full og var hún meðal ann­ars vistuð hjá meintu fyr­ir­tæki á Klapp­ar­stíg sem eng­inn virð­ist kann­ast við.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár