Hagfræðimenntaðar konur segja að verkfall verkakvenna beinist gegn þeim sjálfum

Stjórn Hags­muna­fé­lags kvenna í hag­fræði telur alþjóð­legan bar­áttu­dag kvenna falla í „skugga verk­falla“. Konur víða um heim boða til verk­falla í til­efni bar­áttu­dags­ins.

Hagfræðimenntaðar konur segja að verkfall verkakvenna beinist gegn þeim sjálfum

Ungar hag­fræði­mennt­aðar konur full­yrða í grein sem birt­ist í Kjarn­anum í dag að verk­falls­boðun dags­ins sé „sér­stak­lega til höf­uðs verka­kvenna“ og harma að alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna sé hald­inn hátíð­legur „í skugga verk­falla“. Sem kunn­ugt er er það Efling stétt­ar­fé­lag, sem sam­anstendur að miklu leyti af verka­konum, sem boðar til verk­falls­ins. 

Greinin hefur vakið nokkra athygli á sam­fé­lags­miðlum, en höf­undar sitja í stjórn félags sem er kallað Hags­muna­fé­lag kvenna í hag­fræði.

Í pistl­inum er vitnað í hag­tölur, svo sem um lands­fram­leiðslu á mann og gini-stuð­ul­inn um tekju­jöfnuð, og full­yrt að „íslenskar konur og þjóðin öll [búi] við afburða lífs­kjör sem við getum verið stolt af“. Í grein­inni er talið upp hversu vel Ísland og íslenskar konur standi á alþjóða­vísu að því er varðar jöfnuð og hag­sæld.

Í lok greinar birtir félagið hug­vekju til kvenna. Þar kemur fram að félagið telji að efna­hags­legar stað­reyndir hafi verið dregnar í efa, hafi þær yfir höfuð verið dregnar fram í kjara­bar­átt­unni.

„Verk­falls­boðun dags­ins í dag er sér­stak­lega til höf­uðs verka­kvenna. Konur sinna bæði mik­il­vægum og fjöl­breyttum störfum í íslensku sam­fé­lagi og eru í meiri­hluta þeirra sem sinna fjár­mála­þjón­ustu, fræðslu­starf­semi, heil­brigð­is­þjón­ustu, svo dæmi séu tek­in, ásamt því að vera um helm­ingur þeirra sem starfa innan ferða­þjón­ust­unn­ar,“ skrifa þær. „Standa þarf vörð um þessi störf og efla kjör þeirra sem þeim sinna, ekki síður en ann­arra. Það verður þó ekki gert með því að líta fram­hjá efna­hags­legum veru­leika í yfir­stand­andi kjara­við­ræð­um.“

Stað­reynd­irnar sem félagið teflir fram eru að við Íslend­ingar búum við afburða lífs­kjör en á sama tíma sé minna svig­rúm, í núver­andi efna­hags­legri stöðu, til launa­hækk­ana. Varar félagið við því að gengið verði of langt í kjara­við­ræðum, því afleið­ingin verði óstöð­ug­leiki sem bitni mest á þeim lægst settu.

Konur víða um heim taka þátt í verk­föllum í dag í til­efni alþjóð­legs bar­áttu­dags kvenna. Þar má nefna lönd eins og Argent­ínu, Spán, Frakk­land, Grikk­land, Þýska­land, Sviss og Írland. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár