Læknafélagið leggst gegn auknu frelsi til þungunarrofs

Stjórnin seg­ist ekki sjá „ástæðu til að Ísland gangi í þessu frum­varpi lengra en nokk­urt hinna Norð­ur­land­anna“.

Læknafélagið leggst gegn auknu frelsi til þungunarrofs
Afstaða stjórn­ar­innar Umsögnin um þung­un­ar­rofs­frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra er und­ir­rituð af Reyni Arn­gríms­syni for­manni fyrir hönd stjórnar Lækna­fé­lags­ins. Mynd: Af vef Læknafélags Íslands

Lækna­fé­lag Íslands er mót­fallið því að þung­un­ar­rof verði heim­ilað til loka 22. viku með­göngu eins og gert er ráð fyrir í frum­varpi Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. „LÍ sér ekki ástæðu til að Ísland gangi í þessu frum­varpi lengra en nokk­urt hinna Norð­ur­land­anna hefur séð ástæðu til að gera og leggur til að fyr­ir­komu­lag gild­andi laga að þessu leyti verði áfram við­haft,“ segir í umsögn félags­ins um frum­varpið. 

Rök félags­ins eru tvenn. Annars vegar full­yrðir Lækna­fé­lagið að í núgild­andi lögum séu hvort eð er tíma­mörkin „sett fram með þeim hætti að þau gefi konum ætíð kost á því að leita þung­un­ar­rofs“ en hins vegar að „hvergi á Norð­ur­lönd­unum [sé] miðað við svo langa með­göngu gagn­vart þung­un­ar­rofi og lagt er til í þessu frum­varpi“. 

Í upp­haf­legum frum­varps­drögum ráð­herra var miðað við 18 vikna tíma­mörk líkt og í sænskum lögum. Þetta var gagn­rýnt harð­lega af fag­fólki, t.d. af Félagi íslenskra fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­lækna, sem taldi að með því væri í raun „lagt til að réttur kvenna til þung­un­ar­rofs vegna mjög alvar­legra fóst­ur­vanda­mála þar sem fóstur væri líf­væn­legt væri tak­mark­aður miðað við núgild­andi lög“.

Land­spít­al­inn tók í sama streng og benti á að með 18 vikna mark­inu væri lokað fyrir þann mögu­leika að konur geti valið að enda með­göngu vegna klof­ins hryggjar, vatns­höf­uðs, litn­inga­frá­vika, hjarta­galla og margra fleiri vanda­mála. 

Samkvæmt gild­andi lögum um fóst­ur­eyð­ingar er þung­un­ar­rof leyfi­legt eftir 16 vikur séu miklar líkur á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs. Ísland hefur hins vegar full­gilt samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks þar sem er að finna ákvæði um rétt til lífs og skyldu ríkja til vit­und­ar­vakn­ingar um mann­lega reisn fatl­aðra. 

Eft­ir­lits­nefnd um fram­kvæmd sátt­mál­ans hefur túlkað ákvæðin á þann veg að aðild­ar­ríki megi ekki mæla fyrir um það í lögum að fötlun fóst­urs sé grund­völlur heim­ildar til þung­un­ar­rofs. Með því að afnema ákvæði um þung­un­ar­rof vegna fötl­unar og færa tíma­mörk óskil­yrtrar heim­ildar til þung­un­ar­rofs úr 12 vikum upp í 22 yrðu kröfur sátt­mál­ans upp­fylltar að þessu leyti. Er þetta í sam­ræmi við þróun í lög­gjöf um rétt­indi fatl­aðs fólks og athuga­semdir sem eft­ir­lits­nefndin hefur gert við lög­gjöf erlendis. Þá gefur auga leið að breyt­ingin felur í sér að konur fá aukið sjálfs­for­ræði yfir eigin lík­ama, aukið svig­rúm til að ákveða hvort þær vilji eign­ast barn eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár