Leynd hvílir yfir íslensku fjárfestunum á bak við kaup á ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja

Íslenskir fjár­festar horfa til þess að gera Græn­höfða­eyjar að sam­bæri­legri tengi­stöð fyrir flug á suð­ur­hveli og Ísland er í norðri. Hvaða fjár­festar eru á bak við félagið liggur ekki fyrir. Sam­herj­a­fólk var á bak við félagið en er það ekki lengur.

Leynd hvílir yfir íslensku fjárfestunum á bak við kaup á ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja
Mun eiga um 10 pró­sent Björgólfur Jóhanns­son mun sjálfur eiga um 10 pró­sent af því hlutafé í rík­is­flug­fé­lagi Græn­höfða­eyja sem hefur verið keypt. Hann segir ekki tíma­bært að greina frá öðrum fjár­festum í verk­efn­inu.

Ekki fæst upp­gefið hvaða íslensku fjár­festar eru á bak við kaupin á rík­is­flug­fé­lagi Græn­höfða­eyja, TACV, ásamt flug­fé­lag­inu Icelandair.

Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair, sem leiðir fjár­festa­hóp­inn, segir að ekki sé tíma­bært að greina frá því, auk þess sem hann sé í raun enn að setja hóp­inn saman. „Ég bara held utan um þennan hóp. Ég hef ekk­ert rætt við þá þannig að ég sé að opin­bera það en þetta mun koma fram þegar þar að kemur. En þetta mun koma fram ein­hvern tím­ann.“

Í svörum sínum til Stund­ar­innar til­greinir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, ekki aðra ein­stak­linga en Björgólf þegar hann er spurður að því hvaða fjár­festar standi að við­skipt­unum. Bogi segir að það hafi verið ósk rík­is­stjórnar Græna­höfða­eyja að fá Björgólf að við­skipt­unum sem fjár­festi. „Á móti Loft­leiðum fer Björgólfur Jóhanns­son fyrir hópi fjár­festa sem eiga 30% hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu sem kaupir 51% hlut. “

 Bogi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár