170 milljóna gjaldþrot eftir Norðurflugsfléttu

Engar eignir fund­ust í búi Moxom ehf., sem áður hét NF Holding og keypti Norð­ur­flug með 120 millj­óna selj­enda­láni árið 2012.

170 milljóna gjaldþrot eftir Norðurflugsfléttu
Norð­ur­flug Félagið var keypt með selj­enda­láni og svo selt aftur.

Skiptum í þrota­búi félags­ins Moxom ehf. er lokið án þess að neitt hafi feng­ist upp í lýstar kröfur sem voru um 170 millj­ónir króna. Tilkynnt var um þetta í Lög­birt­inga­blað­inu fyrir helgi. Áður hét félagið NF Holding ehf., var í eigu Ágústs Magn­ús­sonar og tengd­ist þyrlu­fyr­ir­tæk­inu Norð­ur­flugi. 

Norð­ur­flug var í eigu fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Sunds fyrir hrun en á meðal eig­enda þess voru Páll Þór Magn­ús­son, Páll Krist­jáns­son og Birgir Ómar Haralds­son. 

Stundin greindi frá því árið 2016 að fjórir fyrr­ver­andi stjórn­endur og eig­endur Sunds, þau Páll Þór, Jón Krist­jáns­son, Gabríela Krist­jáns­dóttir og Þórunn Jóns­dóttir, væru pró­kúru­hafar í þremur skatta­skjóls­fé­lögum á Seychelles-eyjum sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr Panama­skjöl­unum. Fram kom að þau hefðu skilið eftir sig skulda­slóð á Íslandi en notað félögin í skatta­skjól­inu til að halda utan um eignir hér­lendis. Þá var haft eftir skipta­stjóra að tor­velt hefði reynst að inn­heimta kröfur sem fyrri eig­endur Sunds voru dæmdir til að greiða þrota­bú­inu. 

Áður en Sund varð gjald­þrota árið 2012 seldu stjórn­endur þess Norð­ur­flug út úr fyr­ir­tæk­inu til NF Holding (síðar Moxom ehf.) – félags Ágústs Magn­ús­sonar, við­skipta­fé­laga Sundar­anna – með 120 millj­óna selj­enda­láni sem aldrei var greitt. 

Áður en NF Holding fór svo í þrot var Norð­ur­flug selt aftur til fyrri eig­enda Sunds. NF Holding reynd­ist eigna­laust og fékkst ekk­ert upp í kröf­urnar sem lýstar voru í þrotabú þess.

Í lok árs 2014 voru fyrr­ver­andi eig­endur og stjórn­endur Sunds og aðilar tengdir þeim dæmdir til að end­ur­greiða þrota­búi félags­ins tæp­lega 500 millj­ónir króna. Páli Þór Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sunds, var gert að greiða búinu 120 millj­ónir, en Frétta­blaðið greindi frá því að fimm dögum eftir að dóm­ur­inn féll hefði Páll selt helm­ing í húsi sínu í Garðabæ til eig­in­konu sinnar og þrota­bú­inu ekki tek­ist að inn­heimta skuld­ina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár