Ár breyt­inga Allt frá inni­legri gleði til djúprar sorgar ein­kenndu líf Evu Ein­ars­dóttur á síð­asta ári. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það sem ég lærði á árinu 2018

Líkt og svo margir aðrir tekst Eva Ein­ars­dóttir á við blöndu af kvíða og til­hlökkun á nýju ári. Það síð­asta var ár mik­illa breyt­inga í lífi hennar. Hér deilir hún með les­endum Stund­ar­innar hvaða lær­dóm hún dregur af því.

1 Að leyfa sér að vera að heiman

Nýtt ár hafið. Þá finn ég oft fyrir blöndu af kvíða og til­hlökkun og er lík­lega ekki ein um það. Skal við­ur­kenna að það er gott að kveðja síð­asta ár sem var ár mik­illa breyt­inga. Hef yfir­leitt ekki verið mikið ára­móta­barn. Á gamlárs­kvöld er línan milli vænt­inga og von­brigða þunn. Fyrir vikið hef ég með­vitað verið að heiman. Nú síð­ast í Lissabon sem tók vel á móti manni með öllum sínum fal­legu litum og sól­skini. Þar á undan á Úlf­ljóts­vatni í sum­ar­bú­stað og ull­ar­sokkum. Áramótin þar á undan í London þar sem við fjöl­skyldan fórum í tívolí og borð­uðum „takeaway“ á gamlárs­kvöldi og árið þar á undan í stjörnu­bjartri Hrísey. Þetta hefur gefið mér mikið. Ég geri mér grein fyrir að það eiga ekki allir þess kost að kom­ast frá og er þakk­lát fyrir þessar minn­is­stæðu ferðir.

2 Að bæta jafnvægi milli einkalífs og vinnu

Fyrstu mán­uðir síð­asta árs voru nokkuð tíð­inda­lausir og í raun í rólegri kant­inum svona í mínum bókum. Var þá ólétt og heima­kær með ein­dæmum sem var góð til­finn­ing og gott að eiga mik­inn tíma að gefa börn­unum. Í raun fannst mér ég sjaldan hafa verið eins mikið til staðar, ekki bara lík­am­lega heldur and­lega. Þetta var líka í fyrsta skiptið sem ég fann sterkt fyrir hversu mik­il­vægt það er að stuðla að betra jafn­vægi milli einka­lífs og vinnu. Nú er bara að finna leiðir til að finna áfram þann takt, án þess að verða endi­lega ólétt aftur.

3 Að passa upp á plássið sitt

Síðustu ár hef ég lagt mig fram með­vitað að bæta mig sem mann­eskju. Góð kona kenndi mér að hugsa um plássið sem ég á, mynd­rænt með því að mynda körfu með hönd­unum fyrir framan sig og hugsa: Þetta er mitt pláss. Um leið og við erum farin að verða óraun­hæf með það sem við komumst yfir, þegar við gefum of mikið af okkur, eða jafn­vel of lítið, þegar við stöndum ekki með sjálfum okkur, setjum ekki öðrum mörk, sinnum ekki lík­am­anum og ég tala nú ekki um að sinna grunn­þörfum eins og að sofa nóg og borða. Ég gleymi ennþá þessum síð­ustu tveimur atriðum og samt er ég nú orðin frekar stór. En ég er orðin fljót­ari að fatta þegar plássið er af skornum skammti eða að það flæðir yfir. Oftar en ekki byrjar maður þá að sýna sínar verstu hliðar og oft­ast við sitt nán­asta fólk. Það sem ég lærði á síð­asta ári er að það reynd­ist vel að útskýra þetta með plássið fyrir eldri börn­unum mínum. Þegar mamma er farin að verða leið­in­leg og með allt á hornum sér. Börnin skildu mjög vel mynd­lík­ing­una með körf­una og könn­uð­ust sjálf við þetta með plássið sitt. Að sama skapi ræddi ég við þau um að við getum ekki bara gleymt okkur og kennt enda­laust „pláss­leysi“ um – við þurfum sjálf að bera ábyrgð og skoða af hverju við högum okkur svona eða hinsegin. Fyrir vikið skiljum við betur hvert annað, getum notað orð í stað þess að eyða löngum tíma í öskur, fýlu og aðra nei­kvæðni. Og notað meiri tíma í upp­byggi­legra sam­tal.

4 Að treysta því að breytingar eru til góðs

Ég nefndi að síð­asta ár hefði verið ár mik­illa breyt­inga. Ég ákvað að kveðja vett­vang stjórn­mála eftir átta frá­bær og lær­dóms­rík ár og skal við­ur­kenna að því fylgdi ótti um hvað kæmi í fram­hald­inu. En að sama skapi hef ég lært að treysta því að breyt­ingar eru af hinu góða og hollt að finna nýjar áskor­anir. Og óvænt í des­em­ber, þegar ég í raun hafði ekki hafið virka atvinnu­leit, fékk ég starf sem upp­fyllti margar mínar óskir og ég er mjög spennt þótt ég við­ur­kenni líka að vera smá kvíðin – en bara smá. Smá kvíði er eðli­legur þegar maður tekur sér eitt­hvað nýtt fyrir hendur og fær mann oftar en ekki til að gera enn betur.

5 Að kvöldsólin lýsir upp veröldina

Einn af hápunktum síð­asta árs var þegar fimmti fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn bætt­ist í hóp­inn í sumar, í miðju verk­falli ljós­mæðra. Það tók á en ég vissi að allt færi vel og var enn og aftur minnt á hversu magn­aður lík­ami okkar kvenna er og hvað ljós­mæður eru mik­il­vægar og dásam­legar.  Litla örverpið, eða kvöldsólin okkar eins og við kjósum að kalla hana, lýsir svo sann­ar­lega upp ver­öld­ina.

Með VökuEva og mað­ur­inn hennar, Eldar, eign­uð­ust sitt þriðja barn á árinu.

6 Að það er engin rétt leið til að syrgja

Og það átti eftir að koma  á dag­inn hvernig lífið getur tekið breyt­ingum hratt þegar móðir mín varð bráð­kvödd í byrjun nóv­em­ber. Ekkert und­ir­býr mann fyrir slíkt. Tók margar vikur að ná því að þegar sím­inn hringdi var það ekki hún. Aldrei hefur maður upp­lifað sorg sem nístir svo og kemur aftan að manni á ólík­leg­ustu stundum. Alveg svo að manni verður óglatt. Það sem maður gæfi fyrir eitt sam­tal í við­bót og fyrir að segja henni frá öllu sem hefur drifið á dag­ana síðan hún fór. Þetta ferli minnir mig á að hvers­dag­ur­inn er svo dýr­mætur. Og það er líka mik­il­vægt að nefna að það er engin ein rétt leið þegar maður syrgir og maður má hafa það eins og maður vill. Ég til dæmis bar

a varð að ryk­suga dag­inn sem hún lést en ég ryk­suga aldrei. Eins skellti ég mér á tón­leika viku seinna og hugs­aði í smá stund: „Er þetta við­eig­andi?“ En mér leið betur og því er svarið já.

7 Að þiggja ást og hjálp

Það sem ég tek með mér sem lær­dóm úr þessu ferli er að þrátt fyrir mikla sorg þá er ég fyrir það fyrsta svo þakk­lát fyrir systk­ini mín og sam­bandið okkar sem hefur orðið sterkara fyrir vikið. Ég er líka þakk­lát fyrir allan hlý­hug frá vinum og ætt­ingjum og hef lært að stundum þarf maður að þiggja ást og hjálp. Og trúið mér, hlý­hug­ur­inn er mik­ill. Fólk veit stundum ekki hvernig það á að vera, sjálf verið þar. Mín nið­ur­staða: Sendið skila­boðin og/eða hringið frekar en að sleppa því. Mér þótti alla vega vænt um hvert orð og skila­boð þótt mér tæk­ist kannski ekki alltaf að svara. Það er aldrei of mikið af kær­leika.

8 Að móðurlega skjaldborgin birtist þegar þörf krefur

Ég verð líka að nefna móð­ur­lega skjald­borg kvenna í kringum mig og okkur systk­inin. Vá, hvað mér hlýnar við þessa hugsun. Það stóð ekki á því þegar kom að því að und­ir­búa erfi­drykkj­una, allar þessar frænkur, vin­konur og vin­konur mömmu svo til í að leggja sitt af mörkum. Fjöllin af upprúll­uðum pönnu­kökum og heitu brauð­rétt­irnir, upp­á­hald mömmu, hefðu getað fætt hálft landið.

9 Að almennilegt viðmót skiptir miklu máli

Í tengslum við óvænt and­lát tekur við mikil og minna skemmti­leg praktísk vinna, margir lausir endar og maður veit varla hvar skal byrja eða enda. Þar hef ég lært hversu mikið við­mót fólks getur skipt máli. Mörg sím­töl þar sem maður veit varla hvers á að spyrja og maður þarf sífellt að end­ur­taka upp­hátt að móðir manns sé látin. Í kjöl­far sím­tala hef ég farið að gráta þegar ég hef upp­lifað kulda og skiln­ings­leysi en einnig fellt tár vegna góð­vildar og ein­stakrar hjálp­semi. Lær­dóm­ur­inn er sá að það kostar ekk­ert að vera almenni­legur, sér í lagi þegar maður mætir fólki á þeirra við­kvæm­ustu stundum.

10 Að sorgin er gríma gleðinnar

Þessi orð Kahlil Gibran voru lesin við útför mömmu en hún var fróð­leiks­fús og spáði mikið í trú­ar­brögð og heim­inn eins og hann birt­ist okkur: „Sorgin er gríma gleð­innar og lindin sem er upp­spretta gleð­innar er oft full af tárum, hvernig ætti það öðru­vísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns­ins, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg­mæddur skoð­aðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á meta­skálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara.“

Lýkur þá þessum pistli með sam­an­tekt: Við getum sjálf haft áhrif á hvernig við viljum hafa eitt­hvað, sam­an­borið gamlárs­kvöld, jól, sum­ar­frí. Við þurfum að huga að sjálfum okkur og taka ábyrgð á okkar plássi. Það er ótrú­lega mikið af kær­leika þarna úti ef við leyfum okkur að finna hann.  Það er ekk­ert rétt eða rangt þegar kemur að því að syrgja. Það kostar ekk­ert að vera almenni­legur. Og það besta er að við erum enda­laust að læra á okkur sjálf og lífið og ég fer spennt inn í nýtt ár, ný verk­efni og lær­dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár