Mynd: Heiða Helgadóttir

Huldufólkið: Þúsundir búa í iðnaðarhverfum, þar af 860 börn

Á bil­inu fimm til sjö þús­und ein­stak­lingar búa í iðn­að­ar­hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar af 860 börn. Eftir því sem neyð­ar­á­stand á leigu­mark­aði harðnar leita sífellt fleiri skjóls í atvinnu- og iðn­að­ar­hús­næði. Íbúar þora ekki að stíga fram af ótta við að missa það litla sem þeir þó hafa. Þeir lýsa von­leysi og dep­urð yfir því að hafa endað í þess­ari stöðu.

Það er kulda­legt um að lit­ast í ónefndu iðn­að­ar­hverfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ljósastaurar lýsa upp ein­mana­legar götur á meðan regnið lemur á bíl­hræjum sem hvíla handan bjarmans. Hér virð­ist eng­inn á ferli nema vind­ur­inn sem rymur á leið sinni milli bíla­sala, blikk­smiðja og verk­stæða. Ljóstírur og blá­blikk­andi sjón­varps­ljós á bak við gard­ínur efri hæð­anna gefa til kynna að hér búi fólk. Ungt par birt­ist skyndi­lega á milli tveggja lag­er­bygg­inga. Þau eru með barna­vagn á milli sín. „Veistu hvað ger­ist ef ég tala við þig?“ spyr fað­ir­inn þegar blaða­maður leit­ast eftir við­tali. „Þeir henda mér út.“

308 húsSlökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur kort­lagt atvinnu- og iðn­að­ar­hús­næði í höf­uð­borg­inni þar sem er búseta.

Mikil eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og síhækk­andi leigu­verð hefur orðið til þess að sífellt fleiri hafa fundið sig knúna til þess að leita skjóls frá veðri og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár