Þingmaður keypti íbúð á undirverði

Helgi Hjörvar, þáver­andi alþing­is­maður, keypti íbúð við Berg­staða­stræti á 10 millj­ónir króna um mitt ár 2015, um þriðj­ung af mark­aðsvirði. Hann veð­setti íbúð­ina fyrir nær tvö­falt kaup­verð hennar. Rekur íbúð­ina nú sem leigu­í­búð í gegnum Airbnb.

Þingmaður keypti íbúð á undirverði
Hagn­að­ist um millj­ónir Helgi Hjörvar hagn­að­ist um millj­ónir króna þegar hann keypti íbúð á Berg­staða­stræti langt undir mark­aðs­verði árið 2015, meðan hann er enn á þingi. Mynd: Pressphotos/Geirix

Helgi Hjörvar, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, keypti rúm­lega 50 fer­metra íbúð við Berg­staða­stræti í Reykja­vík á 10 millj­ónir króna um mitt ár 2015. Á sama tíma seld­ust sam­bæri­legar íbúðir á svæð­inu á um 25 til 27,5 millj­ónir króna sam­kvæmt fast­eigna­sala sem Stundin ræddi við.

Samkvæmt fast­eigna­mati er íbúðin í dag skráð 26,65 millj­óna króna virði, en mark­aðsvirði er að jafn­aði hærra. Kaupverð íbúð­ar­innar var því langt undir mark­aðs­verði. 

Helgi seldi íbúð­ina svo inn í eign­ar­halds­fé­lag sem hann á með eig­in­konu sinni, Þórhildi Elín­ar­dóttur, í árs­lok í fyrra eftir að hafa veð­sett hana fyrir tæp­lega 20 millj­óna króna lánum hjá Lands­bank­anum. Seljandi íbúð­ar­innar var kona að nafni Sigurrós Eng­il­berts­dóttir.

Aðstandendur vildu að konan skoðaði rétt sinn

Eftir við­skiptin með íbúð­ina átti Helgi sam­tals fjórar fast­eignir af fimm í hús­inu sem um ræðir við Berg­staða­stræti. Þrjár af íbúð­unum er nú not­aðar sem útleigu­í­búðir á Airbnb-heima­síð­unni sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Fjórða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár