Ekkert verður úr kaupum Icelandair á WOW

Fallið frá kaup­samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Hætt við kaup
Hætt við kaup Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair á WOW air

Ekkert verður úr kaupum Icelandair Group á WOW air. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair.Segir þar að um sam­eig­in­lega nið­ur­stöðu beggja félaga sé að ræða.

Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group, segir í til­kynn­ingunnu að þetta sé nú orðið ljóst. „Fyr­ir­huguð kaup Icelandair Group á flug­fé­lag­inu Wow air munu ekki ganga eftir. Stjórn og stjórn­endur beggja félaga hafa unnið að þessu verk­efni af heilum hug. Nið­ur­staðan er vissu­lega von­brigði. Stjórn­endum WOW air færi ég þakkir fyrir mjög gott sam­starf í þessu verk­efni síð­ustu vikur. Jafn­framt óskum við eig­endum og starfs­fólki félags­ins alls hins besta.“

Haft er eftir Skúla Mogensen, for­stjóra og stofn­anda Wow air að það hafi verið ljóst strax í upp­hafi að það væri metn­að­ar­fullt verk­efni að klára alla fyr­ir­vara við kaup­samn­ing­inn á þetta skömmum tíma. „Við þökkum stjórn­endum Icelandair Group fyrir sam­starfið í þessu krefj­andi verk­efni og óskum sömu­leiðis stjórn­endum og starfs­fólki Icelandair Group alls hins besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár