Skerðir innleiðing þriðja orkupakkans fullveldi Íslands?

Íslandi ber að inn­leiða þær til­skip­anir og reglu­gerðir ESB sem tengj­ast pakk­anum.

Skerðir innleiðing þriðja orkupakkans fullveldi Íslands?

Nokkuð hefur verið deilt und­an­farið um inn­leið­ingu svo­kall­aðs þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins í íslensk lög. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir inn­leið­ingu hans vera „stór skref í að gefa eftir full­veldi lands­ins“ sem muni skerða „sjálf­stjórn­ar­rétt Íslands“. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra hefur sagt að óvíst sé hvort meiri­hluti sé fyrir inn­leið­ingu hans á Alþingi. Tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Brynjar Níelsson og Óli Björn Kárason, hafa lýst yfir efa­semdum um inn­leið­ingu hans.

Þriðji orku­pakki Evr­ópu­sam­bands­ins var sam­þykktur árið 2009. Pakkinn var tek­inn upp í EES-samn­ing­inn með ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar í fyrra og ber því Íslandi  að inn­leiða þær til­skip­anir og reglu­gerðir ESB sem tengj­ast pakk­anum. Pakkinn snýr að efl­ingu innri mark­aðar fyrir raf­orku og aukna sam­keppni á honum. Einnig fá eft­ir­lits­stofn­anir á borð við Orku­stofnun aukið sjálf­stæði.

Gagn­rýnendur orku­pakk­ans lýsa yfir áhyggjum af því að orku­verð á Íslandi muni hækka með aðild lands­ins að sam­eig­in­legum orku­mark­aði Evrópu. Verði sæstrengur lagður til Evrópu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár