Nýtt húsnæði fyrir unga karlmenn í vímuefnaneyslu

Reykja­vík­ur­borg kaupir hús­næði við Granda­garð undir neyð­ar­skýli. Starf­semin á að hefj­ast í mars en þangað til verður rýmum fjölgað í Gisti­skýl­inu við Lind­ar­götu.

Nýtt húsnæði fyrir unga karlmenn í vímuefnaneyslu

Borg­ar­ráð sam­þykkti í gær að keypt verði hús­næði fyrir neyð­ar­skýli fyrir unga vímu­efna­neyt­endur. Starf­semin á að hefj­ast í mars á næsta ári, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Skýlið verður fyrir unga karl­menn í vímu­efna­neyslu og kostar rekstur þess um 115 millj­ónir króna á ári. Sóla­hrings­vakt verður í hús­næð­inu sem er stað­sett að Granda­garði 1A. Þar til starf­semin hefst verður tíma­bundin fjölgun plássa í Gisti­skýl­inu við Lind­ar­götu með því mark­miði að ekki þurfi að vísa neinum frá í vetur, sam­kvæmt til­kynn­ingu.

,,Opnun neyð­ar­skýlis fyrir unga vímu­efna­neyt­endur verður mik­il­vægur áfangi í að bæta þjón­ustu við þann hóp borg­ar­búa,“ segir Heiða Björg Hilm­is­dóttir for­maður vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. „Á næsta ári munum við inn­leiða end­ur­skoð­aða aðgerða­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra, það er því margt á döf­inni í  þessum mik­il­væga mála­flokki.“

Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar þjón­ustar 65 ein­stak­linga í virkri neyslu sem búa í sér­stöku hús­næði á vegum borg­ar­innar. Á fundi borg­ar­ráðs var einnig ræddur und­ir­bún­ingur vegna kaupa á 25 smá­hýsum sem verða stað­sett í nokkkrum þyrp­ingum vestan Elliðaáa.  Þeim fram­kvæmdum á einnig að ljúka í mars 2019.

Áætlaður kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar á árinu 2019, vegna þjón­ustu við vímu­efna­neyt­endur í virkri neyslu eða í kjöl­far með­ferðar er um 1,2 millj­arðar króna, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár