Hannes ekki aðalhöfundur heldur eini höfundurinn

„Ég er ekki höf­undur þess­arar skýrslu,“ skrifar Eiríkur Bergmann.

Hannes ekki aðalhöfundur heldur eini höfundurinn
Fjár­mála­ráðu­neytið samdi við Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands um rann­sókn á erlendum áhrifa­þáttum banka­hruns­ins.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor er eini höf­undur skýrsl­unnar um erlenda áhrifa­þætti hruns­ins. Þetta stað­festir Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Í skýrsl­unni er vísað til Hannesar sem aðal­höf­undar (e. main aut­hor) en hag­fræð­ing­arnir Ásgeir Jónsson og Birgir Þór Run­ólfs­son nefndir sem sam­starfs­menn (e. collaborators) auk þess sem fram kemur að Eiríkur Bergmann stjórn­mála­fræði­pró­fessor hafi gengið til liðs við verk­efnið á seinni stigum. 

„Ég er ekki höf­undur þess­arar skýrslu né er ég skráður sem slíkur í henni,“ skrifar Eiríkur Bergmann í umræðum um málið á Facebook. „Ég tók þátt í verk­efn­inu með því að gera úttekt á Icesave-deil­unni“. 

Aðspurð um málið segir Guðbjörg Andrea: „Hannes er eini höf­und­ur­inn (þ.e. hann einn skrif­aði) en hafði eitt­hvað sam­ráð við Eirík, Ásgeir og Birgi Þór Run­ólfs­son. Ég hef ekki heyrt um fleiri sam­starfs­menn.“ 

Hún segir að Félags­vís­inda­stofnun hafi fengið greiddar 7,5 millj­ónir króna fyrir verk­efnið og þær hafi runnið til Hannesar og sam­starfs­manna hans. Enn eigi eftir að rukka loka­greiðsl­una, 2,5 millj­ónir. 

Í skýrslu Hannesar er bent sér­stak­lega á að hann og sam­starfs­menn hans séu ekki alls ótengdir þeim atburðum og við­fangs­efnum sem fjallað er um í skýrsl­unni. Þannig hafi til dæmis Ásgeir Jónsson verið aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings fyrir hrun og Eiríkur Bergmann setið í stjórn­laga­ráði eftir hrun. Fram kemur að sam­starfs­menn­irnir hafi „gert nið­ur­stöður rann­sókna sinna aðgengi­legar Hannesi, sem fram­kvæmdi eigin sjálf­stæðar rann­sóknir, skrif­aði skýrsl­una og ber sjálfur fulla ábyrgð á henni“. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár