Að deyja fyrir Danzig

Þar sem heims­styrj­öldin hófst og kalda stríð­inu lauk.

Að deyja fyrir Danzig
Borgin þar sem sagan var skrifuð Fáar borgir í Evrópu hafa leikið jafn stórt hlut­verk í seinni tíma mann­kyns­sögu eins og Gdansk eða Danzig eins og hún hét áður. Mynd: Valur Gunnarsson

Lengi vel þótti lík­lega ekk­ert sér­stak­lega fínt að fara til Póllands. Þegar landið barst í tal sáu eflaust margir fyrir sér gráar komm­ún­ista­blokkir og búldu­leita hafn­ar­verka­menn. Samt er Pólland það land sem hefur orðið nákomn­ara okkur en flest önnur, Pól­verjar eru jú langstærsti inn­flytj­enda­hóp­ur­inn, veittu okkur neyð­ar­lán í hrun­inu, eitt fárra landa, og hægt er að fá pólsk-íslenskar pulsur í Bónus og sjá pólskar myndir í Bíó Paradís. Og það hlaut að koma að því að Íslend­ingar færu að upp­götva landið sjálft, því æ fleiri vinnu­staða­ferðir og helg­ar­reisur eru farnar til Póllands. Því er ætl­unin að hefja greina­röð sem skoðar þetta merki­lega land bæði innan frá og utan. Misræmið í sam­skiptum þjóð­anna kemur þó fljót­lega í ljós, engar ferða­bækur um Pólland eru til í íslenskum bóka­búðum, en eitt það fyrsta sem mætir manni á flug­vell­inum í Gdansk er ferða­hand­bók um Ísland til sýnis í sjopp­unni.

Gdansk er ein af þessum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár