Eyþór Arnalds í dulbúnu hverfisblaði Sjálfstæðismanna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vegakerfið“

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill „rýmka vega­kerfið“ á helstu umferð­ar­götum borg­ar­innar og draga úr þétt­ingu byggðar, þvert á stefnu flokks­ins í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Þetta kemur fram í nýju hverf­is­blaði sem er rit­stýrt af félagi Sjálf­stæð­is­manna, en ekk­ert stendur um tengslin á vef­síðu þess.

Eyþór Arnalds í dulbúnu hverfisblaði Sjálfstæðismanna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vegakerfið“
Eyþór Arnalds Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill draga úr þétt­ingu byggðar og halda Skeif­unni eins og hún er, sam­kvæmt við­tali í hverf­is­blaði. Mynd: Framboð Eyþórs Arnalds

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, vill draga úr þétt­ingu byggðar og rýmka umferð um Grens­ás­veg, Kringlu­mýr­ar­braut, Miklu­braut og Bústaða­veg, þvert á stefnu flokks­ins fyrir kosn­ingar í vor.

Þetta kemur fram í nýju hverf­is­blaði „Hverfið okkar - Reykja­vík 108“, sem Félag Sjálf­stæð­is­manna í Smáíbúða-, Fossvogs- og Bústaða­hverfi gefur út. „Hverf­is­blaðið hefur verið í burð­ar­liðnum um nokkurn tíma,“ segir í rit­stjórn­arp­istli. „Það er ekki póli­tískt þó svo þeir sem skrifa í blaðið hafi póli­tískar skoð­anir.“

Í blað­inu er, auk við­tals við Eyþór, grein eftir Hildi Björns­dóttur borg­ar­full­trúa flokks­ins. Á síð­ustu opnu þess kemur fram að í rit­nefnd séu Elinóra Inga Sig­urð­ar­dóttir, Erlendur Borg­þórs­son og Júlíus Valsson, sem öll hafa verið í stjórn hverf­is­fé­lags Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Á vef­síðu blaðs­ins stendur ekk­ert um tengsl þess við flokk­inn, fyrir utan að fálki prýðir merki síð­unnar.

Rýmri götur og göngubrýr yfir

Í við­tal­inu talar Eyþór um skipu­lags­mál, sér í lagi hvað varðar hverfið í póst­núm­eri 108. Viðtalið tekur Erlendur Borg­þórs­son, for­maður hverf­is­fé­lags Sjálf­stæð­is­manna. Erlendur spyr Eyþór hvort hann vilji „spóla til baka“ aðgerðum núver­andi meiri­hluta í þágu þétt­ingar byggðar.

„Já, ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vega­kerfið víða, bæði Grens­ás­veg­inn, Kringlu­mýr­ar­braut, Miklu­braut, og Bústaða­veg­inn, þetta eru allt vegir sem eru orðnir eins og þrengdar slag­æðar,“ segir Eyþór. „Við þurfum að fara í að snúa þessu alfarið við og bæta sam­göngur í stað þess að gera þær verri.“

Aðspurður hvort slíkar fram­kvæmdir hafi nei­kvæð áhrif fyrir gang­andi og hjólandi, segir Eyþór lausn­ina fel­ast í að fjar­lægja göngu­ljós og byggja brýr yfir veg­ina. „Ég sé fyrir mér göngu­brýr yfir þessar helstu umferð­ar­æðar til að létta á umferð­inni,“ segir Eyþór. Þá bætir hann við að með því að létta á umferð muni strætó geta komið á réttum tíma svo „amma og afi geti fengið heim­sókn frá afkom­end­unum.“

Þétting byggðar skapi „fátæka undirstétt öreiga“

Í við­tal­inu seg­ist Eyþór einnig vera and­vígur þró­un­ar­verk­efni í Skeif­unni þar sem stefnt er að íbúa­byggð á svæð­inu. „Skeifan er eitt af þessum flóknu málum þar sem verið að umbreyta ein­hverju rót­grónu í eitt­hvað annað en það er en ég er frekar á því að það eigi að klára hverfin sem þegar er byrjað á og að menn séu síðan að vinna með hreint borð,“ segir Eyþór. „Við höfum því nefnt Örfirisey eða nýja Vest­ur­bæ­inn, og Keldur, sem er miklu hag­kvæmara heldur en að fara að brjóta upp gamlar götur. “

Í fram­hald­inu leið­ist sam­talið út í umræðu um þétt­ingu byggðar almennt. „Ég myndi vilja að gömul og gróin hverfi fái frekar að blómstra eins og þau eru í stað þess að reyna að breyta þeim í eitt­hvað annað,“ segir Eyþór. Nefnir hann að íbúða­verð í þétt­ari hverfum sé hærra en í úthverfum og talar um dýrar nýjar íbúðir í gömlum hverfum sem „lúxus­í­búðir í boði Sam­fylk­ing­ar­innar“.

Erlendur spyr þá Eyþór hvort hann haldi að með þétt­ingu byggðar hafi núver­andi meiri­hluti viljað „búa til fátæka und­ir­stétt öreiga“. „Ég held að þetta hafi verið vel meint, en leiðin til heljar er stráð fögrum fyr­ir­heitum eins og sagt er,“ segir Eyþór.

Viðsnúningur í stefnu frá því fyrir kosningar

Afstaða Eyþórs til þétt­ingar byggðar virð­ist við­snún­ingur frá því fyrir kosn­ingar, en hann skrif­aði grein um málið í Frétta­blaðið í jan­úar. „Þétting byggðar gengur út á það að fleiri búi á sama stað og geti sótt þjón­ustu stutta vega­lengd,“ skrif­aði Eyþór. „Með þétt­ingu byggðar eiga lífs­gæði að aukast þar sem minni tími fer í að ferð­ast á milli staða og meiri tími er til að njóta.“ Gagn­rýndi hann í fram­hald­inu frammi­stöðu meiri­hlut­ans í mála­flokknum.

Þá tók Hildur Björns­dóttir, sem skip­aði 2. sæti list­ans í kosn­ing­unum, í sama streng, tal­aði fyrir efl­ingu almenn­ings­sam­gangna og sagð­ist vilja „alls ekki sjá ein­hver þriggja hæða, ógn­vekj­andi, mis­læg gatna­mót“ í við­tali í sama miðli. „Það er hægt að þétta víðar og þétta fleiri hverfi og það mun skapa aðstæður til að hverfið getið orðið meira lif­andi,“ sagði Hildur.

„Baráttumaður af gamla skólanum“

Í for­mála skrifar Erlendur að líf Eyþórs hafi aldrei verið ein­tómur dans á rósum. „Hann er bar­áttu­maður og hefur þurft að hafa fyrir því að koma sér áfram, bæði í tón­list­ar­líf­inu, við­skipta­líf­inu sem og í stjórn­mál­unum. Hann er bar­áttu­maður af gamla skól­anum.“

Þá lýsir hann því hvernig Eyþór „fór á rak­ara­stofu, fékk sér herra­klipp­ingu og jakka­föt og lauk MBA-prófi í lög­fræði frá HR og stund­aði jafn­framt nám við Harvard Business School“ og snéri úr tón­list­ar­líf­inu yfir í við­skipti.

„Hann á að baki afar far­sælan feril í við­skipta­líf­inu og hefur sýnt að hann býr yfir frá­bærum stjórn­un­ar­hæfi­leikum,“ skrifar Erlendur. „Hann vekur athygli hvar sem hann fer vegna hlý­legrar fram­komu og ein­lægni. Það er stutt í brosið og hann er alltaf reiðu­bú­inn til að ræða málin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitastjórnarmál

Sveitarstjórnarmenn og hættan á hagsmunaárekstrum í íslensku laxeldi
Úttekt

Sveit­ar­stjórn­ar­menn og hættan á hags­muna­á­rekstrum í íslensku lax­eldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveit­ar­stjórn­ar­menn hafi verið starf­andi hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir full­trúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síð­asta kjör­tíma­bili sveit­ar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður lax­eld­is­fyr­ir­tækis starf­andi í sveit­ar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­mögu­leika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.
Vaðlaheiðargöng gera 25 milljóna króna samning við fyrirtæki forseta bæjarstjórnar Akureyrar
FréttirSveitastjórnarmál

Vaðla­heið­ar­göng gera 25 millj­óna króna samn­ing við fyr­ir­tæki for­seta bæj­ar­stjórnar Akur­eyrar

Tölvu­fyr­ir­tæki for­seta bæj­ar­stjórnar Akur­eyrar, Matth­í­asar Rögn­valds­sonar, var valið til að vinna að greiðslu­lausn fyrir Vaðla­heið­ar­göng. Akur­eyr­ar­bær er næst­stærsti hluhtafi fyr­ir­tæk­is­ins sem á göngin. Matthías segir aðkomu sína og Akur­eyr­ar­bæjar að samn­ingnum ekki hafa verið neina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár