Bíl bæjarstjóra lagt í stæði fyrir fatlaða

Bíl Ármanns Kr. Ólafs­sonar var lagt í stæði fyrir hreyfi­haml­aða fyrir utan bæj­ar­skrif­stofu Kópa­vogs­bæjar síð­ast­liðin mið­viku­dags­morgun. Sektin við stöðu­brot­inu nemur 20 þús­und krónum.

Bifreið Ármanns Kr. Ólafsson, bæjarstjóra Kópavogs.
Bifreið Ármanns Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóra Kópavogs. Síð­ast­lið­inn mið­viku­dags­morgun var bif­reið Ármanns lagt í stæði fyrir fatl­aða fyrir utan bæj­ar­stjórn­ar­skrif­stofur Kópavogs.

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dags­morgun var bif­reið Ármanns Kr. Ólafs­sonar, bæj­ar­stjóra Kópa­vogs­bæjar, lagt í bíla­stæði hreyfi­haml­aðra fyrir utan bæj­ar­skrif­stofur Kópa­vogs­bæjar. Sé bif­reið lagt í slíkt stæði, án þessu að gildu stæð­iskorti fyrir hreyfi­haml­aða sé fram­vísað, liggur 20 þús­unda króna sekt við stöðu­brot­inu.

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs­bæjar.

Uppfært: Ármann Kr. Ólafsson hafði sam­band vegna frétt­ar­innar og sagð­ist hafa fyrir mis­tök lagt í stæðið.
„Ég tók ekki eftir þessu merki en ég er vanur að leggja hinum megin við húsið. Það kom orð­send­ing til rit­ara míns um að ég hafi lagt þarna í stæðið og ég lét nátt­úru­lega færa bíl­inn um leið. Ég trúði þessi eig­in­lega ekki og fór því út og sá þá að stæðið er merkt fyrir fatl­aða í hellu­lögn­inni,“ segir Ármann.  Hann seg­ist aldrei af ásetn­ingi eða vilja hafa lagt í stæði fyrir fatl­aða og myndi aldrei gera. „Ég hef beðið um að stæðið verði merkt með betri hætti og biðst inni­lega afsök­unar á þessu.“

Í mál­efna­samn­ingi um meiri­hluta­sam­starfs Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks fyrir kjör­tíma­bilið 2018 til 2022 er lögð áhersla á aðgeng­is­mál fatl­aðra. Þar segir að bæta þurfi aðgengi fatl­aðra að stofn­unum og úti­vist­ar­svæðum. Stæðið sem bif­reið Ármanns var lagt í var fyrir utan helstu stofn­anir Kópa­vogs­bæjar.

Sektir við að leggja bif­reið í stæði fyrir hreyfi­haml­aða án heim­ildar voru tvö­fald­aðar fyrir þremur árum, úr 10 þús­und krónum í 20 þús­und krónur. „Þetta er alveg skýrt: Við byrjum á tvö­földun sekta, en förum hærra ef ófatl­aðir hætta ekki að leggja í þessi stæði,“ skrif­aði Dagur B. Egg­erts­son á Twitter, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar í til­efni hækk­un­ar­innar. 

Ármann er næst­launa­hæsti bæj­ar­stjóri lands­ins með 2.159.670 kr. á mán­uði. Laun hans hafa hækkað um tæp 58% frá upp­hafi kjör­tíma­bils, þegar þau voru 1.368.783 kr. Þess að auki fær Ármann bif­reiða­styrk upp á 137.500 kr. á mán­uði og 130.604 krónur fyrir að sitja í stjórn Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Ekki náð­ist í Ármann við vinnslu fréttt­ar­innar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár