Íslenska þjóðfylkingin boðar framboð til að hindra bænahús múslima og reisa mislæg gatnamót

Íslenska þjóð­fylk­ingin er snúin aftur eftir mis­heppnað fram­boð til Alþingis og boðar fram­boð í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum til þess að stöðva borg­ar­línu og bæna­hús múslima og koma á mis­lægum gatna­mótum.

Íslenska þjóðfylkingin boðar framboð til að hindra bænahús múslima og reisa mislæg gatnamót
Formaður þjóð­fylk­ing­ar­innar Guð­mundur Karl Þor­leifs­son boðar að önnur fram­boð muni koma fram sem myndu „apa eftir“ Íslensku þjóð­fylk­ing­unni. Mynd: Íslenska þjóðfylkingin

Íslenska þjóð­fylk­ingin boð­aði í dag fram­boð sitt til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík með það sem „helstu áherslu“ að „draga til baka lóð undir mosku og allar leyf­is­veit­ingar vegna við­bygg­ingar á bæna­húsi múslima í Öskju­hlíð“.

Þjóð­fylk­ingin vill, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík undir for­ystu Eyþórs Arnalds, koma í veg fyrir borg­ar­línu, sem er sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um upp­fært almenn­ings­sam­göngu­kerfi í for­gangsakstri.

Þess í stað vill Þjóð­fylk­ingin reisa fleiri mis­læg gatna­mót. Um leið vill Þjóð­fylk­ingin „gera Reykja­vík fjöl­skyldu­vænni með skipu­lagn­ingu opinna svæða, það eykur lífs­gæði borg­ar­búa.“

Í núver­andi aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar er lögð áhersla á þétt­ingu byggðar og styrk­ingu almenn­ings­sam­gangna til að vinna gegn sívax­andi umferð­ar­þunga, mengun og kostn­aði og skapa aðstæður fyrir bíl­lausan lífs­stíl. Íslenska þjóð­fylk­ingin vill taka u-beygju í skipu­lags­málum. „Íslenska þjóð­fylk­ingin hafnar borg­ar­línu en vill nýta það fjár­magn sem Vega­gerðin lætur af hendi rakna til upp­bygg­ingar mis­lægra gatna­móta, þannig að umferð geti óhindrað farið eftir aðal­stofnæðum borg­ar­innar,“ segir í fram­boðstil­kynn­ingu.

Þá boðar flokk­ur­inn enn frek­ari dreif­ingu byggðar. „Flytjum stofn­anir borg­ar­innar úr mið­bænum í úthverfi þar [sic] er skyn­sam­legt.“ 

Loks boð­aði Þjóð­fylk­ingin í fram­boðs­yf­ir­lýs­ingu sinni til fjöl­miðla og á blaða­manna­fundi að önnur fram­boð væru vænt­an­leg, sem myndu herma eftir Þjóð­fylk­ing­unni. 

„Formaður flokks­ins sagði jafn­framt að á næstu dögum myndu fleiri fram­boð líta dags­ins ljós sem hefðu í raun enga stefnu aðra en að apa eftir stefnu Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar.“

Íslenska þjóð­fylk­ingin hafði einnig áform um að bjóða fram lista til Alþingis í kosn­ingum í fyrra. Í kjöl­far þess að yfir­kjör­stjórnir í Reykja­vík norður og suður boð­uðu að fals­aðar und­ir­skriftir á með­mæla­listum þjóð­fylk­ing­ar­innar yrðu sendar til lög­reglu, hætti flokk­ur­inn við fram­boð.

Framboðstilkynning Íslensku þjóðfylkingarinnar

 

Frétta­til­kynn­ing um fram­boð Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur. 

Íslenska þjóð­fylk­ingin hélt blaða­manna­fund í dag laug­ar­dag kl. 13. 15 þar sem fram­boð flokks­ins í Reykja­vík var kynnt.

Formaður flokks­ins, Guð­mundur Karl Þor­leifs­son, fór yfir helstu stefnu­mál flokks­ins og kynnti fólkið í þremur fyrstu sæt­unum. 

Helstu áherslu­mál flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar eru að draga til baka lóð undir mosku og allar leyf­is­veit­ingar vegna við­bygg­ingar á bæna­húsi múslíma í Öskju­hlíð en þar hefur m.a. verið veitt leyfi fyrir kallturni.

Að öðru leiti í stuttu­máli eru helstu stefnu­mál: 

o   Höfnum þétt­ingu byggðar á kostnað grænna svæða.

o  Gerum íbúum kleift að eign­ast þak yfir höf­uðið. End­ur­vekjum verka­manna­bú­staða­kerfið.

o  Gerum Reykja­vík fjöl­skyldu­vænni með opnun leik­skóla og rólu­valla

o  Gerum Reykja­vík fjöl­skyldu­vænni með skipu­lagn­ingu opinna svæða, það eykur lífs­gæði borg­ar­búa.

o  Íslenska þjóð­fylk­ingin hafnar borg­ar­línu en vill nýta það fjár­magn sem Vega­gerðin lætur af hendi rakna til upp­bygg­ingar mis­lægra gatna­móta, þannig að umferð geti óhindrað farið eftir aðal­stofnæðum borg­ar­innar.

o  Gjald­frjálst verði í strætó fyrir alla sem stunda skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, minkum mengun.

o  Flytjum stofnannir borg­ar­innar úr mið­bænum í úthverfi þar er skyn­sam­legt. 

o  Hreinsum götur reglu­lega, það minkar svifryk. Heilsu­vernd í fyr­ir­rúmi.

o  Aldraðir eiga skilið áhyggju­laust æfi kvöld, byggjum hjúkr­un­ar­heim­ili og íbúðir fyrir aldr­aða. 

o   Íslenska þjóð­fylk­ingin hafnar borg­ar­línu, nýtum fjár­muni betur.  Búum til mis­læg gatna­mót svo umferð geti kom­ist óhindrað leiðar sinnar, það minkar mengun.

Formaður flokks­ins sagði jafn­framt að á næstu dögum myndu fleiri fram­boð líta dags­ins ljós sem hefðu í raun enga stefnu aðra en að apa eftir stefnu Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar.

Fyrstu þrjú sæti Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar eru skipuð þannig: 

1. sæti. Guð­mundur Karl Þor­leifs­son, for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar.

2. sæti. Hjördís Bech Ásgeirs­dóttir, félags­liði.

3. sæti. Jens G. Jensson skip­stjóri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár