Þingmönnum í sjálfsvald sett hvort ríkið greiði aksturskostnað þeirra vegna prófkjara

„Mat á því hvað er eðli­legt í þeim efnum er hjá þing­mann­inum,“ segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið.

Þingmönnum í sjálfsvald sett hvort ríkið greiði aksturskostnað þeirra vegna prófkjara
Helgi Bern­ód­us­son Hafnaði því að veita Stund­inni upp­lýs­ingar um dreif­ingu á akst­urs­greiðslum eftir ein­staka þing­mönnum, nafn­laust. Mynd: Pressphotos.biz

Þing­mönnum ber sjálfum að leggja mat á hvort þeir telji rétt að rukka Alþingi um end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar sem teng­ist próf­kjörum eða for­vali hjá stjórn­mála­flokkum fyrir kosn­ingar. Skrif­stofa Alþingis tekur ekki afstöðu til þess hvað telj­ist eðli­legt í þeim efnum. 

„Skrif­stofa Alþingis hefur ekki talið það vera í verka­hring sínum að leggja mat á það hvort þing­maður á erindi á fund sem hann er til dæmis boð­aður á eða hvort rétt hafi verið að hann boð­aði til fundar. Slíkt verður að vera í höndum þing­manns­ins sjálfs,“ segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar. „Skrif­stofan gerir heldur ekki mun á því hvort end­ur­greidd ferð er í aðdrag­anda próf­kjörs, for­vals, kjör­dæm­is­þings o.s.frv. Mat á því hvað er eðli­legt í þeim efnum er hjá þing­mann­inum.“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur við­ur­kennt að hafa látið Alþingi greiða akst­urs­kostnað vegna próf­kjörs­bar­áttu sinnar og dag­skrár­gerðar fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN. Þá liggur fyrir að nokkrir þing­menn hafa ekki fylgt reglu um að not­ast eigi við bíla­leigu­bíl ef keyrðir eru meira en 15 þús­und kíló­metrar á ári né afdrátt­ar­lausum fyr­ir­mælum siða­reglna um að þing­menn eigi að tryggja að end­ur­greiðslur fyrir útgjöld sín séu í full­komnu sam­ræmi við reglur um þing­far­ar­kostnað. 

Stundin spurði Helga Bern­ód­us­son hvort skrif­stofa Alþingis hefði túlkað reglur um þing­far­ar­kostnað með þeim hætti að þing­menn ættu rétt á því að fá akst­urs­kostnað vegna kosn­inga­bar­áttu sinnar í próf­kjörum end­ur­greiddan. Þá var spurt hvort komið hefðu upp álita­mál af þessu tagi við fram­kvæmd regln­anna, og hver afstaða skrif­stofu þings­ins hefði verið í þessum efnum. 

„Það er hins vegar svo að all­mikil umræða, óform­leg, hefur verið um akstur í aðdrag­anda vals á lista, og skrif­stof­unni er vel kunn­ugt um þing­menn hafa strikað slíkar ferðir út, eða ekki gert reikn­ing fyrir þeim, allt eftir þeirra mati,“ segir í svari Helga. Þá tekur hann fram að akstur þing­manna vegna einka­er­inda komi skrif­stofu Alþingis ekki við. „Í inn­lögðum reikn­ingum er skýrt frá til­efni ferðar sem langoft­ast eru fundir sem „þing­mað­ur­inn boðar til eða hann er boð­aður á“ eins og segir í reglum. – Þess utan eiga utan­bæj­ar­menn rétt á að fara heim til sín um helgar,“ segir Helgi. 

Á fundi for­sætis­nefndar í morgun var ákveðið að kalla eftir úttekt skrif­stofu­stjóra Alþingis, Helga Bern­ód­us­sonar, á fram­kvæmd laga um þing­far­ar­kostnað. Þegar Stundin sendi öllum þing­mönnum tölvu­póst í fyrra með spurn­ingum um akst­urs­kostnað svar­aði Helgi Bern­ód­us­son, og sendi svarið á alla þing­menn, á þá leið að sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um akst­urs­gjöld þing­manna yrðu ekki gefnar upp. Þá neit­aði hann einnig að gefa upp óper­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um kostn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár