Svandís Svavarsdóttir, starfandi þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði nokkrum dögum fyrir þingkosningarnar í fyrra að það væri „óhugsandi“ að Vinstri græn færu í ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Hugsanlega hefði samstarf af því tagi einhvern tímann verið á dagskrá hjá flokknum, en í ljósi mála sem komið hefðu upp í aðdraganda kosninga væri stjórnarsamstarf VG og Sjálfstæðisflokksins óhugsandi.
„Það er alvanalegt í aðdraganda kosninga að miðjuflokkar reyni að setja af stað orðróm um að vinstri flokkurinn á hverjum tíma ætli að taka upp samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Slík herferð er nú farin af stað í þessum anda,“ skrifaði Svandís á Facebook þann 21. október 2016 og bætti við:
„Vera kann að samstarf af þessu tagi hafi einhvern tíma verið á dagskrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugsandi við núverandi kringumstæður eftir aðdraganda kosninganna, uppljóstranirnar úr Panama-skjölunum og viðbrögð forystumanna stjórnarflokkanna. Þetta hljóta allir að sjá.“
Svo virðist sem ýmislegt hafi breyst á því ári sem liðið er síðan Facebook-færsln birtist, því nú eiga Vinstri græn í formlegum stjórnarmyndunarviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn aðeins tveimur vikum eftir að gengið var til kosninga.
Boðað var til kosninganna í ár vegna annars konar hneykslismála Sjálfstæðisflokksins en síðast. Að þessu sinni var um að ræða mál er vörðuðu leyndarhyggju og uppreist æru barnaníðinga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir