Mynd: Pressphotos

Bjarni losnaði við 50 milljóna kúlulánaskuld í aðdraganda hrunsins

Lán Bjarna Bene­dikts­sonar var fært yfir á skuld­sett eign­ar­halds­fé­lag föður hans sem var svo slitið eftir hrun. Slita­stjórn Glitnis tók málið til skoð­unar: „Það finnst eng­inn fund­ar­gerð þar sem skuld­skeyt­ingin er leyfð.“

Bjarni Bene­dikts­son var los­aður undan 50 millj­óna kúlu­láni sem hann hafði tekið per­sónu­lega hjá Glitni og skuldin færð yfir á eign­ar­halds­fé­lag föður hans, Haf­silfur ehf. 

Skuld­skeyt­ingin átti sér stað þann 1. febr­úar árið 2008 en Bjarni fékk lánið vegna kaupa á Olíu­fé­lag­inu árið 2006. Þetta sýna gögn sem Stundin hefur unnið úr í sam­starfi við The Guardian.

Slita­stjórn bank­ans tók málið til sér­stakrar skoð­unar eftir hrun og taldi að með skuld­skeyt­ing­unni hefði bank­inn gefið eftir kröfur sem ellegar hefðu verið meiri líkur á að greidd­ust. Var sér­stak­lega bent á að hvergi væri fjallað um gjörn­ing­inn í fund­ar­gerðum bank­ans og enga bókun væri að finna um málið. 

„Það finnst eng­inn fund­ar­gerð þar sem skuld­skeyt­ingin er leyfð,“ segir í skjali slita­stjórn­ar­innar frá því í apríl 2011. Tveimur árum síðar, þann 22. júlí 2013, var Haf­silfri slitið eftir að skuldir þess höfðu rokið upp úr öllu valdi. 

Seldi hlutinn í N1 fyrir hrun

Bjarni fékk kúlu­lánið vegna kaupa hans og skyld­menna hans á hluta­bréfum í Olíu­fé­lag­inu. Stundin fjall­aði um við­skiptin á föstu­dag, en sam­tals lán­aði Glitnir um 26,6 millj­arða vegna yfir­töku Eng­ey­inga og við­skipta­fé­laga þeirra á fyr­ir­tæk­inu sem síðar fékk heitið N1. Kúlulán Bjarna var veitt til þriggja ára með hand­veði í skráðum verð­bréfum sem hann var með í stýr­ingu hjá einka­bank­anum. 

Bjarni átti hluta­féð í N1 áfram og á hluta­haf­alista N1 í árs­lok 2007 var hann skráður fyrir rúm­lega 0,8 pró­senta hlut í félag­inu sem var 82 millj­óna króna virði. DV greindi svo frá því árið 2009 að Bjarni hefði selt Einari Sveins­syni, föð­ur­bróður sínum, hlut­inn á fyrri helm­ingi hru­nárs­ins 2008.

Bjarni losaður undan persónulegri ábyrgð

Kúlu­lánið hjá Glitni var fært yfir á Haf­silfur í byrjun febr­úar 2008. Um þetta leyti var Vafn­ings­fléttan svo­kall­aða í und­ir­bún­ingi, við­skiptaflétta sem gekk í meg­in­at­riðum út á að flytja áhætt­una á bak við stóran hlut­hafa Glitnis, Þátt International sem var meðal ann­ars í eigu félaga Einars og Bene­dikts Sveins­sonar, yfir á Glitni en um leið að gefa bank­anum gálga­frest og koma í veg fyrir verð­fall hluta­bréfa. 

Tveimur mán­uðum eftir skuld­skeyt­ing­una, þann 1. apríl 2008, var veð í vörslu­reikn­ingi Bjarna, sem hann hafði lagt fram fyrir kúlu­lán­inu, fellt niður.

Í stað­inn komu hand­veð í hluta­bréfum í BNT og trygg­ingar í vörslu­reikn­ingi í eigu Haf­silf­urs.

BNT-sam­stæðan var yfir­tekin af kröfu­höfum árið 2011 og skuld­aði þá rúma 50 millj­arða. Ári síðar var BNT hf úrskurðað gjald­þrota og 4,3 millj­arða skuldir þess afskrif­aðar. Voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir á meðal þeirra sem töp­uðu á falli N1-veld­is­ins. 

Sagðist hafa gert upp skuldir við Glitni

Bjarni tjáði sig um skuldir sínar við Glitni í Kast­ljós­svið­tali árið 2010. „Þær skuldir voru allar upp­gerðar á því ári [2008]. Ég hef enga óeðli­lega fyr­ir­greiðslu fengið neins staðar,“ sagði hann. 

Gögnin sem Stundin hefur undir höndum stað­festa að 50 millj­óna skuld Bjarna Bene­dikts­sonar við Glitni var færð yfir í skulda­safn Haf­silf­urs, eign­ar­halds­fé­lags föður hans, í febr­úar 2008, sama mán­uði og Bjarni átti aðkomu að Vafn­ings­flétt­unni og seldi hluta­bréf sín í bank­anum. 

„Ég hef enga óeðli­lega
fyr­ir­greiðslu fengið“

Haf­silfur samdi um skulda­upp­gjör við Íslands­banka í lok árs­ins 2012 og félag­inu var gefið nafnið Malvík ehf. Ekki liggur fyrir hve mikið þurfti að afskrifa hjá félag­inu. Samkvæmt slita­reikn­ingi þess nam leið­rétt­ing og eft­ir­gjöf skulda meira en 3 millj­örðum króna á reikn­ings­ár­inu 2012 en skuld­irnar voru horfnar árið 2013. 

Benedikt á í dag annað félag sem einnig heitir Haf­silfur. Það var stofnað árið 2008 og er notað til fjár­fest­inga hans, meðal ann­ars í ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Kynn­is­ferðum. 

Báðir leystir undan persónulegum ábyrgðum

Benedikt Sveins­soneig­andi Haf­silf­urs og faðir Bjarna Bene­dikts­sonar

Sjálfur var Benedikt Sveins­son leystur undan sjálf­skuld­ar­á­byrgð vegna lána Glitnis til Haf­silf­urs í aðdrag­anda hruns­ins.

Beiðni um nið­ur­fell­ingu sjálf­skuld­ar­á­byrgð­ar­innar var afgreidd í tölvu­kerfi bank­ans þann 29. sept­em­ber 2008, sama dag og Glitnir var þjóð­nýttur, en þremur dögum áður, þann 26. sept­em­ber, hafði Benedikt inn­leyst 500 millj­óna eignir úr Sjóði 9 og sent til Flórída. 

Hvort tveggja, nið­ur­fell­ing sjálf­skuld­ar­á­byrgð­ar­innar og 500 millj­óna greiðslan til Flórída, var á meðal þess sem slita­stjórn Glitnis tók til sér­stakrar skoð­unar á árunum eftir hrun sem mögu­leg rift­un­ar­mál í ljósi inn­herj­a­upp­lýs­inga sem talið var hugs­an­legt að Benedikt hefði búið yfir.

Á end­anum þótti þó ekki ástæða til að láta reyna á málin fyrir dóm­stólum. 

Litu á Bjarna sem eiganda Hafsilfurs

Eins og Stundin hefur áður greint frá tók Bjarni virkan þátt í fjár­fest­ingum Haf­silf­urs. Svo virð­ist sem Glitnir hafi í raun litið á Bjarna sem eig­anda félags­ins. Í tölvu­pósti frá því í apríl 2008 kom t.d. fram að lána­gögn vegna Haf­silf­urs ættu ekki að vera send heim til Bjarna eða Bene­dikts heldur til Bjarna Mark­ús­sonar, frænda þeirra sem sá um mál­efni þeirra beggja í einka­banka­þjón­ustu Glitnis. 

Orðrétt sagði í tölvu­pósti frá starfs­manni Glitnis: „Haf­silfur ehf. (Bjarni Bene­dikts­son) fékk sent heim til sín seðil yfir van­skil á USD lán hjá sér. Hann Bjarni við­skipta­stjóri hans bað mig að ítreka það að ekk­ert á að fara til Bene­dikts, það á allt að fara til Bjarna við­skipta­stjóra hjá 580 sem snertir lánin hans.“ Þá sýna tölvu­póst­sam­skipti að Bjarni var boð­aður á fund árið 2006 vegna lána­mála Haf­silf­urs þótt félagið væri í eigu föður hans. 

Þessi skiln­ingur virð­ist hafa erfst til slita­stjórnar Glitnis. Í skjali slita­stjórnar frá apríl 2011 þar sem fjallað er um skuld­skeyt­ing­una segir: „Ljóst er að hér er um að ræða að skuld­bind­ing er færð af eig­anda félags yfir á félagið og bank­inn gefur eftir kröfur sem ann­ars hefðu verið meiri líkur á að greidd­ust.“ 

Hér má sjá afrit af skjal­inu frá slita­stjórn Glitnis:

Slitastjórnin gat ekkert gert

Þá virð­ist tíma­setn­ing nið­ur­fell­ingar veðs­ins í vörslu­reikn­ingi hafa sett strik í reikn­ing­inn að því er varðar hugs­an­legar aðgerðir slita­stjórn­ar­innar.

„Þessi gjörn­ingur er hins vegar gerður rétt utan við 6 mán­aða mörkin eða fyrir 15 maí 2008. Veð í vörslu­reikn­ingi er fellt niður þann 1 apríl 2008,“ segir í skjal­inu en með þessu er átt við slita­stjórnin gat ekki rift skuld­skeyt­ingu á grund­velli gjald­þrota­laga vegna falls Glitnis um haustið. 

Þess vegna slapp Bjarni Bene­dikts­son á end­anum við þetta 50 millj­óna króna lán og það lenti í millj­arða króna skulda­hít eign­ar­halds­fé­lags föður hans. 

Stundin hefur ítrekað óskað eftir við­tölum við Bjarna Bene­dikts­son í gegnum aðstoð­ar­konu hans Svan­hildi Hólm Vals­dóttur. Bjarni hefur hins vegar ekki orðið við þeirri beiðni. 

Glitnir misnotaður

Eins og frægt er orðið fólu Einar og Benedikt Sveins­synir Bjarna Bene­dikts­syni umboð til að veð­setja hluta­bréf í félag­inu Vafningi fyrir hönd eign­ar­halds­fé­lag­anna BNT, Haf­silf­urs og Hró­mundar í byrjun febr­úar 2008. Þetta var for­senda þess að Glitnir gæti veitt 100 millj­óna evra pen­inga­mark­aðs­lán til Milestone þann 8. febr­úar. 

Sér­stakur sak­sókn­ari ákærði síðar þá Lárus Welding og Guðmund Hjalta­son vegna lán­veit­ing­ar­innar og taldi við­skiptin hafa átt þátt í falli bank­ans. Þeir voru á end­anum sýkn­aðir í Hæsta­rétti sem taldi „ósannað að farið hafi verið umfram þá áhættu, sem bank­inn hafi talið við­un­andi“. Hins vegar kom skýrt fram í dómi Hæsta­réttar að eng­inn vafi léki á því að ásetn­ing­ur­inn á bak við lán­veit­ing­una hefði „staðið til mis­notk­unar“ og að hinir ákærðu hefðu tekið hags­muni lán­taka fram yfir hags­muni Glitnis. 

Gögn frá bank­anum sem Stundin hefur undir höndum sýna að Benedikt og Haf­silfur seldu hluta­bréf í Glitni fyrir um 850 millj­ónir króna vik­urnar eftir Vafn­ings­flétt­una. Tölvu­póst­sam­skipti benda til þess að Bjarni Bene­dikts­son hafi sjálfur fundað með Guðmundi Ólasyni, þáver­andi for­stjóra Milestone, og Lárusi Welding, banka­stjóra Glitnis, í febr­úar. Tveimur dögum eftir fund­inn með Lárusi hóf Bjarni sölu á hluta­bréfum sínum í bank­anum og seldi fyrir rúm­lega 119 millj­ónir króna.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár