Fjárkúgun og falsanir – leynipeningarnir eiga sig sjálfir

Júlíus Vífill Ingv­ars­son svar­aði spurn­ingum Stund­ar­innar um fund sem hann átti, þar sem var lýst hvernig forð­ast ætti skatt­greiðslur. Hann lýsti því að pen­ing­arnir í sjóði hans á aflands­svæði ættu sig sjálfir. Hér­aðs­sak­sókn­ari rann­sakar nú þessi við­skipti vegna gruns um skatt­svik og pen­inga­þvætti. Upptaka af fund­inum hefur verið birt og er hún hluti rök­stuðn­ings hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir því að Sigurði G. Guð­jóns­syni er meinað að vera lög­maður Júlíusar Vífils, vegna gruns um aðild hans. Júlíus Vífill sagði upp­tök­una vera fals­aða.

Fjárkúgun og falsanir – leynipeningarnir eiga sig sjálfir

Já, er það Júlíus Vífill? 

„Já.“

Bless­aður og sæll, Jón Trausti heiti ég og er að hringja frá Stund­inni. 

„Stund­inni, já.“

Júlíus Vífill hvíslar, að því er virð­ist til nær­staddra: „Stundin“.

Við erum að skoða fund sem átti sér stað 6. apríl í fyrra. Með þér og Sigurði G. Guð­jóns­syni og fleirum, þar sem er verið að ræða um skatt­greiðslur af sjóðnum sem fjallað hefur verið um opin­ber­lega og er staddur á aflands­svæði.  

„Hverjir voru á þessum fundi? Hverjir aðrir?“

 

Þarna voru þú, fleiri erf­ingjar og Sigurður G. Guð­jóns­son.

„Nei, hverjir aðrir?“

Ég er sem sagt bara að horfa á efni fund­ar­ins.

„Ef þú ert að biðja mig um ein­hver við­brögð við þessu verð­urðu nátt­úr­lega að segja mér hverjir þetta voru sem voru á fund­inum.“ 

Ég skal segja þér hvert efni fund­ar­ins var. Það var umræða um að féð hafi ekki verið flutt í dán­arbú vegna þess að lög­maður þinn hafði ráð­lagt þér að gera það ekki til að forð­ast skatt­greiðslur. 

„Hvaða. Ókei, ég hef ekki heyrt þetta og kann­ast ekki við þetta.“

Efast um að fundurinn hafi átt sér stað

Þú kann­ast ekki við fund­inn?

„Ertu viss um að þetta sé af ein­hverjum slíkum fundi?“

Já, tíma­setn­ingin kemur óbeint fram á þessum fundi. En þú kann­ast við að hafa fundað með lög­manni þínum og öðrum erf­ingjum þarna í byrjun apríl, er það ekki?

„Ég verð nú eig­in­lega að skoða bara tíma­setn­ingar varð­andi það. Ég get ekk­ert sagt þér um það svona, af því að þú virð­ist ekki hafa miklar upp­lýs­ingar um þetta. Ég bið þig eig­in­lega að upp­lýsa mig, svo ég sé ekki bara að upp­lýsa þig. Svo við séum svona ein­hvers staðar á sömu síðu.“

Sko, það sem ég er að gera núna er að leita við­bragða hjá þér, við bæði þessum fundi og stöð­unni á þessu máli ...

„Ég get ekki gefið þér við­brögð við ein­hverju sem þú getur ekki sagt mér frá.“

Ef við horfum aðeins fram hjá því hver var á fund­inum og horfum á stöðu máls­ins í heild sinni. Þetta fé er ennþá þarna á reikn­ingi erlendis, er það ekki rétt? Nú erum við að tala um, meðal ann­ars þetta fé sem flutt var í félagið þitt, Silwood. Það er ennþá statt erlendis, er það ekki?

„Við skulum aðeins taka þessu rólega. Nú verður þú aðeins að sýna mér þá virð­ingu að segja mér um hvað þú ert að tala. Þú hringir í mig og segir frá ein­hverjum fundi fyrir ári síðan. Ókei, ég kannski man ekki alveg eftir fundi fyrir ári síðan. Hver sendi þér þetta? Kannski að það myndi nú lýsa ein­hverju.“

Gagnrýndi fjölmiðla fyrir að leita ekki viðbragða

Það sem ég er að gera hér er að leita við­bragða hjá þér. Þú hefur gagn­rýnt fjöl­miðla fyrir að leita ekki við­bragða og upp­lýs­inga hjá þér. Nú er ég að gera það. Og nú ert þú á móti að biðja mig um að veita þér alls konar upp­lýs­ingar sem eru ekki efni þess­ara umfjall­ana og eru ekki lyk­il­at­riði. 

„Róaðu þig aðeins niður. Þú ert að biðja mig um að, þú sagðir leita við­bragða hjá fundi, sem mun … ert þú með ein­hverja útskrift af þeim fundi, eða hvað?“

Ég er sem sagt með áreið­an­legar upp­lýs­ingar um efni þessa fundar.  

„Af hverju seg­irðu að þær séu áreið­an­legar? Segðu mér af hverju þú segir það. Ertu með upp­töku af fund­inum?“

Þú veist vænt­an­lega hvað það snýst um allt saman. En það er kannski ekki lyk­il­at­riði, heldur er lyk­il­at­riðið staðan á þessu máli sem hefur verið til opin­berrar umfjöll­unar og þú hefur stundum svarað fyrir og stundum ekki. Og nú langar mig bara, ef við horfum fram hjá fund­inum sem slíkum, er það rétt að þú hafir ákveðið að fresta því, og ákveðið að sleppa því, að koma með pen­ing­ana til lands­ins vegna þess að þú vildir forð­ast skatt­greiðslur?

„Nei.“

Ertu búinn að greiða skatt hér á landi af þessum pen­ingum?

„Ég hef bara gert alger­lega fylli­lega grein fyrir þessu máli öllu saman. Á þeim stöðum sem ég þarf að gera það, á opin­berum stöðum. Það er allt saman á hreinu.“

Peningarnir ekki komnir til landsins

En þessir pen­ingar, þeir eru ekki komnir til lands­ins, er það, ennþá?

„Ef þú ætlar að fara að birta eitt­hvert við­tal, þú grípur svo mikið fram í fyrir mér að mér finnst erfitt að tala við þig.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár