„Þar koma samningsmarkmiðin fram svart á hvítu“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir samn­ings­markmið Ís­lands í mögu­leg­um að­ild­ar­við­ræð­um við Evr­ópu­sam­band­ið liggja fyr­ir.

„Þar koma samningsmarkmiðin fram svart á hvítu“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkisráðherra birti grein um hvað atkvæðagreiðslan í ágúst þýðir. Mynd: Golli

„Sumir fjölmiðlar hafa lagt sig fram um að mála þetta ferli sem eitthvað annað en það er. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma kjósenda í að eltast við hvert einasta slíkt skot. Þjóðin á betra skilið en þras. Hún á skilið staðreyndir.“

Þetta skrifar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í grein á Vísi í dag. Greinin ber yfirskriftina „Aðildarviðræður eru samningaviðræður“ og í henni leggur hún áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist ekki um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið heldur hvort eigi að ganga til samningaviðræðna. Samningur yrði í kjölfar viðræðna lagður undir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Þetta er grundvallaratriði sem hefur því miður kafnað í hávaðanum undanfarnar vikur,“ skrifar hún. „Í stað þess að ræða inntak málsins, hvað við ætlum okkur að fá út úr slíkum viðræðum og hvernig við ætlum að verja íslenska hagsmuni, hefur umræðan aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga.“

Samningsmarkmiðin í …

Kjósa
77
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SH
    Sigurður Halldórsson skrifaði
    JÁ GEFUR OKKUR tækifæri sem vert er að grípa til SJÁ hvað getur orðið okkur sem þjóð FARSÆLLA til framtíðar!
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Takk fyrir það.

    JÁ til að SJÁ hvernig okkur tekst til.

    Annað væri heimska eða óheiðarleiki nema hvort tvegga væri.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár