Óljóst hversu oft hefur þurft læknisaðstoð eftir beitingu rafvopns

Lög­reglan hefur aldrei beitt raf­byssum oftar á einum árs­fjórð­ungi en á fyrsta fjórð­ungi þessa árs. Rík­is­lög­reglu­stjóri heldur ekki utan um það hversu oft hefur þurft lækn­is­að­stoð eftir beit­ingu raf­byssu.

Óljóst hversu oft hefur þurft læknisaðstoð eftir beitingu rafvopns
Rafbyssa Rík­is­lög­reglu­stjóri er ekki með töl­fræði um hversu oft hefur þurft lækn­is­að­stoð eftir beit­ingu raf­byssu.

Lög­reglan beitti raf­byssu gegn fimm manns á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. Í alls 30 skipti drógu lög­reglu­menn vopn úr slíðri eða ógn­uðu með því. Raf­byssum hefur aldrei verið beitt jafn oft á einum árs­fjórð­ungi síðan lög­reglan hóf notkun þeirra árið 2024.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur hins vegar ekki upp­lýs­ingar um hversu oft hefur þurft lækn­is­að­stoð eftir beit­ingu slíks vopns, að því fram kemur í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Raf­byssur hafa verið til umræðu und­an­farið eftir að maður brennd­ist alvar­lega þegar lög­reglan á Suð­ur­nesjum beitti raf­byssu í maí. Hann liggur nú hætt kom­inn á sér­stakri bruna­deild í Bergen í Noregi að sögn lög­manns hans, Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar.

„Lögregla leggur ávallt mat á ástand ein­stak­linga sem hafa verið hand­teknir áður en þeir eru vistaðir í fanga­klefa,“ segir í svari rík­is­lög­reglu­stjóra. „Ein­stak­lingum sem beittir hafa verið raf­varn­ar­vopni er einnig afhent upp­lýs­inga­blað um mögu­legar auka­verk­anir hafi þeir ekki verið færðir undir lækn­is­hendur.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár