Gögn stjórnarráðsins háð sambandi við útlönd

Tölvu­póst­kerfi stjórn­ar­ráðs­ins myndi lík­lega detta út og skjöl og sam­skipta­gögn verða óað­gengi­leg kæmi til rofs á netteng­ingu við útlönd. Gögn ráðu­neyta eru geymd á erlendum net­þjónum í umsjá hins banda­ríska Microsoft.

Gögn stjórnarráðsins háð sambandi við útlönd
Í ský­inu Tölvu­póstar ráð­herra, starfs­manna ráðu­neyta, ásamt minn­is­blöðum, daga­tölum og vinnu­gögnum, eru geymdir á erlendum net­þjónum hins banda­ríska Microsoft. Utan­rík­is­ráð­herra segir gögnin þó geymd í Evrópu. Mynd: Golli

Stjórn­völd hafa ekki sett sér form­lega skil­grein­ingu á staf­rænu full­veldi og tölvu­póst­kerfi ráðu­neyta gæti lam­ast ef net­sam­band við útlönd rofn­aði. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráð­herra við þing­fyr­ir­spurn Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

Ástæðan er sú að ráðu­neytin, í gegnum UMBRA – þjón­ustu­mið­stöð Stjórn­ar­ráðs­ins, reiða sig að stórum hluta á skýja­lausnir banda­ríska tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Microsoft sem eru reknar utan Íslands. Þar eru vistuð tölvu­póst­sam­skipti, skjöl og önnur vinnu­gögn sem verða til í dag­legum rekstri ráðu­neyt­anna. Við alvar­legt rof á net­sam­göngum við útlönd myndi aðgangur að þess­ari þjón­ustu falla niður.

Í svari sínu við­ur­kennir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra að engin sam­eig­in­leg og form­leg skil­grein­ing á staf­rænu full­veldi sé til staðar innan ráðu­neytis síns. Þótt áhersla sé lögð á öryggi og yfir­ráð gagna í fram­kvæmd hefur ekki verið mótuð skýr stefna eða form­legt ramma­verk um mála­flokk­inn.

Ráðherra bendir jafn­framt á að afrit gagna séu varð­veitt á Íslandi og að unnið sé að upp­bygg­ingu vara­teng­ingar um gervi­hnött í sam­starfi við Farice. Afrit af gögnum á skýja­þjón­ustum Microsoft séu geymd á Íslandi en „ljóst er þó að það myndi taka tíma að koma henni aftur að fullu í rekstur ef alvar­leg röskun yrði“.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár