Tekjuhæstu karlarnir eignuðust átta milljörðum meira en tekjuhæstu konurnar

Tíu tekju­hæstu karlar landsins eignuðust samanlagt átta milljörðum meira en tíu tekju­hæstu konurnar. Tuttugu prósent allra á Hátekju­listanum eru konur í ár. Þrjár konur komast á lista yfir tíu tekju­hæstu einstaklinga landsins.

Þegar blaðamenn Heimildarinnar unnu að gerð Hátekju­listans var farið yfir skatta lands­manna. Eitt varð augljóst strax í upphafi: kvenmanns­nöfn þýddu sjaldan hátekjur.

Heimildin tók saman kynja­hlutfall þeirra sem komust á listann í ár. Tuttugu prósent eru konur. Hlut­fallið er nokkuð svipað og í fyrra en það var þá nítján prósent. Aldurs­forseti listans er kona og sömuleiðis yngsti einstaklingurinn. Þrjár konur eru á lista yfir efstu tíu tekju­hæstu einstaklinga landsins. 

Helga S. Guðmunds­dóttir, fyrr­verandi eigandi Samherja hf., er í öðru sæti á listanum með rúma 5,6 milljarða í heildar­árstekjur. Súsanna Sigurðar­dóttir fjár­festir er í fimmta sæti með rúmlega 3,2 milljarða og Ingunn Sigurðar­dóttir hárgreiðslu­meistari situr í áttunda sæti með ríflega 1,6 milljarða. Í heildina eru tólf manns í efstu sætum listans með yfir milljarð í heildar­árstekjur. 

Saman­lagðar heildar­árstekjur tíu tekju­hæstu kvenna landsins eru rúmum 8,2 milljörðum lægri en saman­lagðar heildar­árstekjur tíu tekju­hæstu karla landsins. 

Hlutfall kvenna …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið undanfarið ár