Kosningar og Eurovision sama kvöld

Loka­kvöld Söngvakeppni Eurovision verður haldið 16. maí á næsta ári, sama dag og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram um land allt.

Kosningar og Eurovision sama kvöld
Væb Væb kepptu fyrir hönd Íslands í Eurovision í fyrra. Mynd: Eurovision

Tilkynnt var í morgun að Söngvakeppni Eurovision yrði haldin í Wiener Stadthalle, stærstu tón­leik­ar­höll Vínar í Aust­ur­ríki á næsta ári.

Loka­kvöldið fer fram 16. maí en sama dag verða haldar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á Íslandi.

Þetta verður í sjö­tug­asta skiptið sem keppnin fer fram en um 166 millj­ónir áhorf­enda í 37 löndum horfðu á keppn­ina í fyrra. Enn fleiri fylgd­ust með á sam­fé­lags­miðlum eins og Instagram og TikTok.

Sig­ur­veg­ari keppn­innar í fyrra, tón­list­ar­mað­ur­inn JJ, sem heitir Johannes Pietsch, kall­aði eftir því í fyrra að Ísrael yrði úti­lokað frá keppn­inni vegna inn­rás­ar­innar í Gaza. Mætti hann miklum mót­byr í Aust­ur­ríki, heima­landi sínu, sem stutt hefur dyggi­lega við bakið á Ísrael.

Keppnin var haldin í sömu tón­leika­höll árið 2015 eftir sigur Conchita Wurst árið áður.

Samkvæmt vef Lands­kjör­stjórnar fara sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram þriðja laug­ar­dag í maí­mán­uði sem ekki ber upp á laug­ar­dag fyrir hvíta­sunnu. Beri sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar upp á laug­ar­dag fyrir hvíta­sunnu skal kjör­degi flýtt um eina viku.

62 sveit­ar­fé­lög eru á Íslandi sam­kvæmt vef Samtaka íslenskra sveit­ar­fé­laga og kosið verður um sveit­ar­stjórnir í þeim öllum.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stella Kristjánsdóttir skrifaði
    Ég hef engan áhuga lengur á söngvakeppninni þegar Ísrael fær að vera með eins og ekkert hafi gerst. Sveitastjónakosningar verða vara málið þetta kvöld.
    2
    • MS
      Michael Schulz skrifaði
      I couldn't agree more! It has become imperativ for any ethically acting government to totally stop any cooperation and contacts with Zionist colonial Israel !
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár