Mikil fækkun í komum hælisleitenda hjá Læknavaktinni

Komur hæl­is­leit­enda á Lækna­vakt­ina árið 2024 voru aðeins fjórð­ungur af komum þeirra árið áður.

Mikil fækkun í komum hælisleitenda hjá Læknavaktinni
Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra Ráðherra svar­aði fyr­ir­spurn þing­manns Mið­flokks­ins um flokkun sjúk­linga. Mynd: Golli

Hæl­is­leit­endur komu 88 sinnum á Lækna­vakt­ina á síð­asta ári sam­kvæmt svari Ölmu Möller heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Nönnu Mar­grétar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, á Alþingi.

Árið 2022 komu 258 hæl­is­leit­endur, eða umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, á Lækna­vakt­ina og 343 árið 2023. Fjöldi þeirra árið 2024 var því aðeins um fjórð­ungur miðað við árið áður. Umsóknum um vernd fækk­aði um meira en helm­ing milli áranna 2023 og 2024, en þorri þeirra hafði verið frá Úkraínu og Venes­ú­ela. Hætt var í kjöl­farið að veita umsækj­endum frá síð­ar­nefnda land­inu sér­stak­lega við­bót­ar­vernd.

Spurning Nönnu Mar­grétar snéri að því hvernig sjúk­lingar væru flokk­aðir í heil­brigð­is­kerf­inu og óskaði eftir skýr­ingum á svari ráð­herra við fyrri fyr­ir­spurn hennar. Í henni hafði hún óskað eftir því að vita um fjölda hæl­is­leit­enda sem og íslenskra rík­is­borg­ara, erlendra ferða­manna, erlends vinnu­afls og ann­arra hópa hjá bráða­mót­tök­unnar í Fossvogi og við Hring­braut og hjá Lækna­vakt­inni. Vildi hún einnig vita hver kostn­að­ur­inn hefði verið við hvern þess­ara hópa á árunum 2022 til 2024.

Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttirÞing­maður Mið­flokks­ins spurði um flokkun sjúk­linga og kostnað við ein­staka hópa.

Í svar­inu kom fram að sumir ein­stak­lingar séu skráðir með „svo­kall­aða gervikenni­tölu“ og erlent rík­is­fang í afgreiðslu­kerfi spít­al­ans. „Um ósjúkra­tryggða ein­stak­linga er að ræða en ekki er hægt að greina á milli hvort við­kom­andi er ferða­maður, umsækj­andi um alþjóð­lega vernd eða ein­stak­lingur sem er nýlega fluttur hingað til lands og er á bið­tíma eftir sjúkra­trygg­ingu,“ segir í svar­inu. 

Fram kemur að stæsti hópur ósjúkra­tryggðra séu ferða­menn. „Að því er varðar komur ein­stak­linga sem fengið hafa alþjóð­lega vernd þá eru þeir sjúkra­tryggðir og ekki flokk­aðir sér­stak­lega,“ segir enn­fremur í svar­inu. „Hjá Lækna­vakt­inni eru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd þó flokk­aðir sér­stak­lega og voru komur 258 árið 2022, 343 árið 2023 og 88 árið 2024.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár