Útlendingastofnun: Getur gert viðkvæma stöðu barns verri að ýta undir væntingar

Boðað hefur verið til mót­mæla á Aust­ur­velli í dag þar sem mót­mælt verður nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála um að synja Oscari Anders Florez Bocanegra um land­vist­ar­leyfi. Útlend­inga­stofnun hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls Oscars.

Útlendingastofnun: Getur gert viðkvæma stöðu barns verri að ýta undir væntingar

„Það er mik­il­vægt að hafa í huga að þótt dreng­ur­inn seg­ist vilja dvelja hér á landi og hér á landi sé fjöl­skylda sem vilji sjá um hann, þá á hann for­eldra í heima­landi. Hvorki íslensk né kól­umbísk barna­vernd­ar­yf­ir­völd hafa svipt þau for­sjá,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Útlend­inga­stofn­unar vegna máls hins sautján ára gamla Oscar Anders Florez Bocanegra sem hefur verið synjað um lands­vist­ar­leyfi. 

Boðað hefur verið til mót­mæla á Aust­ur­velli í dag vegna nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála í máli Oscars. Mótmælin hefj­ast á sama tíma og þing­fundur, klukkan 15. 

Mikið hefur verið um mál hans í fjöl­miðlum og fóst­ur­for­eldrar hans stigið fram og rætt um þann órétt sem Oscar upp­lifir. Þau segj­ast alls staðar ganga að lok­uðum dyrum.

„Þegar end­an­leg nið­ur­staða á stjórn­sýslu­stigi liggur fyrir þarf því að hafa hug­fast að það getur gert við­kvæma stöðu barns enn erf­ið­ari að ýtt sé undir vænt­ingar sem ekki verða upp­fylltar“
Úr til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar

Í yfir­lýs­ingu Útlend­inga­stofn­unar segir enn­fremur að „það er eðli­lega þung­bært að fá aðra nið­ur­stöðu í máli sínu en vonir stóðu til. Þegar end­an­leg nið­ur­staða á stjórn­sýslu­stigi liggur fyrir þarf því að hafa hug­fast að það getur gert við­kvæma stöðu barns enn erf­ið­ari að ýtt sé undir vænt­ingar sem ekki verða upp­fylltar.“

Þá mót­mælir Útlend­inga­stofnun því sem haldið hefur verið fram, að umsókn Oscars um vernd hafi aldrei verið skoðuð efn­is­lega af stjórn­völdum; máls­á­stæður hans hafi verið metnar á sjálf­stæðan hátt þegar hann var hér á landi ásamt föður sínum og systrum, í sam­ræmi í sam­ræmi við reglur laga um útlend­inga og að teknu til­liti til ákvæða barna­vernd­ar­laga og samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barna.

Endurtekinni umsókn vísað frá 

„Þegar dreng­ur­inn sótti síðar um vernd sem fylgd­ar­laust barn var staða hans vissu­lega önnur en áður. Eftir rann­sókn Útlend­inga­stofn­unar var nið­ur­staðan að sú breyt­ing væri þó ekki þess eðlis að hún breytti fyrri ákvörðun stofn­un­ar­innar um að synja umsókn hans um alþjóð­lega vernd. End­ur­tek­inni umsókn hans var því vísað frá,“ segir í yfir­lýs­ingu Útlend­inga­stofn­unar. Þar er síðan tekið fram að kæru­nefnd útlend­inga­mála hafi nú stað­fest þessa nið­ur­stöðu og úrskurðað að Oscar upp­fylli ekki skil­yrði laga til að fá alþjóð­lega vernd.

Hér má lesa úrskurð kæru­nefndar í mál­inu í heild sinni. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár