Umfjöllun um hópnauðgun til skoðunar hjá Fjölmiðlanefnd

Fjöl­miðla­nefnd fjallar um kvörtun sem nefnd­inni barst vegna umfjöll­unar Fréttin.is um að níu hæl­is­leit­endur hefðu hópnauðgað ung­lings­stúlku um pásk­ana. Allir helstu frétta­miðlar greindu frá því að lög­reglan er ekki með slíkt mál á sínu borði.

Umfjöllun um hópnauðgun til skoðunar hjá Fjölmiðlanefnd

Fjöl­miðla­nefnd hefur borist ein ábend­ing vegna umfjöll­unar á Fréttin.is þar sem stað­hæft var að níu hæl­is­leit­endur hefðu hópnauðgað 16 ára stúlku um pásk­ana. Málið verður lagt fyrir á næsta fundi Fjöl­miðla­nefndar í maí­mán­uði. Þetta kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar vegna máls­ins. 

Samkvæmt leið­bein­ingum um kvart­anir til Fjöl­miðla­nefndar segir að „Allir not­endur fjöl­miðla sem telja að efni fjöl­miðla, með stað­festu hér á landi, ýmist rit­stjórnar eða aug­lýs­inga­efni, brjóti gegn þeim lögum sem um fjöl­miðla gilda geta lagt fram kvörtun til Fjöl­miðla­nefndar. Ekki er skil­yrði að við­kom­andi eigi sjálfir hags­muna að gæta.“

Vef­mið­ill­inn Frettin.is birti á laug­ar­dag grein þar sem segir að miðl­inum hafi „borist upp­lýs­ingar um alvar­lega hópnauðgun sem kom upp um pásk­ana, þar sem erlendir menn eru grun­aðir um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á 16 ára stúlku­barni.“ Þá var í umfjöll­un­inni full­yrt að um níu menn hafi verið að ræða og séu þeir „hæl­is­leit­endur frá Palest­ínu og Tyrkir.“ Einnig sagði í grein­inni að upp­tökur af frels­is­svipt­ing­unni liggi fyrir hjá lög­reglu. Sömu­leiðis voru lýs­ingar á því að menn­irnir „brutu á barn­inu kyn­ferð­is­lega og skipt­ust á að nauðga stúlkunni í um þrjár klukku­stundir.“

Greinin vakti gríð­ar­lega athygli og mik­ill fjöldi fólks sem deildi henni á sam­fé­lags­miðlum, gjarnan með for­dæm­ingu á inn­flytj­endum. Allir helstu frétta­miðlar lands­ins greindu síðan frá því í gær að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði ekk­ert mál af þessum toga á sínu borði. Þá greindi RÚV sömu­leiðis frá því að ekk­ert slíkt mál hafi komið til neyð­ar­mót­töku Land­spít­al­ans fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis. 

Heim­ildin ræddi við Margréti Frið­riks­dóttur, rit­stjóra Fréttin.is, í kjöl­farið þar sem hún sagð­ist engu að síður standa við umfjöll­un­ina og vændi lög­regl­una um lygar: „við stöndum við þessa frétt þangað til hið sanna kemur í ljós,“ sagði Margrét. Þá sagð­ist hún hafa unnið umfjöll­un­ina upp úr Facebookstatus konu sem hún hafi metið trú­verð­uga, og hafi kannað bak­grunn hennar: „Nei nei, við skoð­uðum þetta mjög vel, þessa konu. Ég veit síma­núm­erið hennar, heim­il­is­fangið, kann­aði hvort þetta væri alvöru mann­eskja. Ég sá mynd af henni með konu sem ég þekki mjög vel og er mjög góð kona og alvöru mann­eskja. Ég kann­aði alveg bak­grunn hennar. Það er furðu­legt að vera svona að skjóta sendi­boð­ann.“

Skráður fjölmiðill hjá Fjölmiðlanefnd

Fréttin.is er skráður fjöl­mið­ill hjá Fjöl­miðla­nefnd. Um rit­stjórn­ar­stefnu mið­il­is­ins stendur á vef Fjöl­miðla­nefndar: 

„Tján­ing­ar­frelsið er horn­steinn lýð­ræð­is­legs sam­fé­lags og er mið­ill­inn stofn­aður með það að leið­ar­ljósi að opna umræð­una í íslensku sam­fé­lagi sem við teljum vera eins­leita og jafn­vel byggða á þöggun og rit­skoðun sem er and­stætt lýð­ræð­inu. Við ein­beitum okkur að því að birta fréttir byggðar á trú­verð­ugum heim­ildum sem aðrir miðlar treysta sér ekki til að fjalla um.“

Fjöl­miðla­nefnd er sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem heyrir undir menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neytið. Hún hefur eft­ir­lit með lög­gjöf um fjöl­miðla og skil­greint hlut­verk hennar er að standa vörð um vernd barna, rétt almenn­ings til upp­lýs­inga og fjöl­breytni og fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

Nefndin fundar um allar kvart­anir sem nefnd­inni ber­ast og tekur ákvörðun um hvört ástæða sé til að hefja máls­með­ferð. Meðal atriða sem Fjöl­miðla­nefnd hefur til hlið­sjónar við ákvörðun um hvort „hefja beri rann­sókn“ eru ef „meint brot virð­ist alvar­legt“, að fjöl­miðla­veita sem kvartað er yfir hafi ekki látið af því sem var til­efni kvört­un­ar­innar og hvort með­ferð máls­ins sam­ræm­ist for­gangs­röðun nefnd­ar­innar. Nefndin hefur heim­ild til að beita stjórn­valds­sektum, en álit hennar getur einnig til að mynda falist í leið­bein­andi til­mælum til við­kom­andi fjöl­miðla­veitu.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það eru semsagt fleiri en atvinnubílstjórar sem eru kynþáttahatarar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár