Taxý Hönter bannaður á leigubílastæðinu: „Þeir lugu upp á mig rasisma“

Meðal þeirra leigu­bíl­stjóra sem hefur verið mein­aður aðgangur að leigu­bíla­stæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli er Friðrik Ein­ars­son eða Taxý Hönter. Hann segir ástæð­una vera upp­lognar kvart­anir, meðal ann­ars um að hann sé ras­isti. Karim Askari, leigu­bíl­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Stofn­unar múl­isma á Íslandi, segir Friðrik hafa áreitt sig og aðra bíl­stjóra.

<span>Taxý Hönter bannaður á leigubílastæðinu: </span> „Þeir lugu upp á mig rasisma“

Einn þeirra hund­rað leigu­bíl­stjóra sem hefur verið mein­aður aðgangur að leigu­bíla­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli, var bann­aður í kjöl­far kvart­ana á þriðja tug bíl­stjóra af erlendum upp­runa. 

 „Þar sem þeir lugu upp á mig ras­isma – að ég væri að leggja þá í rasískt ein­elti og væri með dóna­skap við kúnna. Þeir sem sagt kröfð­ust þess að það yrði sett gæsla á svæðið til að verja þá fyrir áreiti frá mér,“ segir Friðrik Ein­ars­son, sem er þekktur undir nafn­inu „Taxý Hönter“ á inter­net­inu. 

Isavia hyggst koma upp örygg­is­gæslu á leigu­bíla­svæð­inu en lög­regla hefur ítrekað verið kölluð að svæð­inu und­an­farin miss­eri. 

Lýsir ófremdarástandi í bransanum

Síðustu mán­uði hefur verið lokað fyrir aðgang um hund­rað leigu­bíl­stjóra að leigu­bíla­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli í lengri eða skemmri tíma vegna brota á skil­málum vegna aðgangs svæð­inu. Einn þeirra sem hefur tjáð sig um að honum hafi verið bannað að starfa á flug­vell­inum er Friðrik Ein­ars­son, sem einnig er …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Fridrik Einarsson skrifaði
    Friðrik Einarsson hérna sem er á bakvið Taxý Hönter. Hérna er smá sagnfræði-pistill sem ég skildi eftir í kommentakerfi á fb í gær er allt umtal um leigubílastæðið í KEF blossaði upp.

    "Það var Karim "OBER" Askari forstöðumaður moskunnar sem gekk um með undirskriftarlista til að breyta kaffiskúrnum í bænahús ásamt varðhundunum sínum, fyrrv yngriflokka-þjálfara hjá Val, Said Aajal og kvenna- og yngriflokkadómaranum Abdelmajid Zaidy sem settu meðal annars pressu á erlenda ekki-múslíma að skrifa undir.

    Ég er með grjótharða kollega sem neituðu að skrifa undir og ég get aðstoðað fjölmiðla við að komast í samband við þá til að fá það staðfest, það er þó líklegt að einhverjir þeirra þori ekki að koma fram undir nafni né mynd, en ég get skaffað samband við þá. Karim og varðhundarnir hans gengu um "ertu ekki með okkur í liði" við erlendu ekki-múslímana, Karim er einn af helstu arkitektunum af þeim stóra og þykka vegg sem hefur skapast milli ísl og erl bílstjóra.
    Ég var ekkert að grínast í Reykjavík Síðdegis á Bylgunni að Flugstöð Leifs Eiríks er hauslausasta bygging landsins. Þeir afhentu bara listann og fengu öllu breytt. Said Aajal er í lífstíðarbanni fyrir að berja mig og hóta að drepa mig inni á stæðinu í viðurvist fjölda starfsmanna Isavia sem sögðust vera að hringja á lögguna, þá gargaði hann yfir allt stæðið "I DON´T CARE, THEY ARE SCARED OF US". Það var enginn af 20 bílstjórunum sem urðu vitni af þessu sem kipptu sér upp við þau orð, þetta var búið að vera vitað í meira en ár þá þarna síðasta sumar að þeir eru með Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóra í vasanum auk alls starfsfólks Isavia.

    Abdelmajid Zaidy mætti svo samdægurs suðureftir eftir að klippt var á aðgang Said og sparkaði í öryggisvörð í reiðiskasti og fór sjálfur í bann, Ég kom þeim báðum í bann á innan við sólarhring á meðan Karim "OBER" Askari var í 2 mánaða fríi í Marakkó að heimsækja ættingja m.a. bróður sinn sem var á fertugsaldri er hann giftist 13 ára stelpu. Karim kallinn þurfti koma fyrr heim úr fríinu því ég var búinn að fá báða vitleysingana undir honum til að missa hausinn og fór létt með það á meðan ég sjálfur var, og er enn, í útlegð frá KEF vegna falskra ásakana þeirra í minn garð.
    Til gamans, Abdelmajid Zaidy skrifaði undir 23 manna listann gegn mér þar sem beðið er m.a. annars um gæslu til að vernda erlendu gengin frá rasísku áreiti frá mér, gæsla var sett á tímabundið eftir að þeir þeim tókst að koma mér í bann, Abdel vinur minn entist ekki í mánuð, þá var hann búinn að sparka í öryggisvörðinn. 30% af listanum voru ekki með skráðan atvinnurekstur í landinu er lögfræðiteymi Isavia notaði listann til að henda mér út.

    Ég afhjúpaði þessa klikkhausa á samfélagsmiðlunum í apríl í fyrra, eftir að hafa sigað Nútímanum á moskuna sem fékk Karim til að skríða aftur inn í moskuna í skömm, fyrir að vera eitt ár á götunum með 9 bíla skráða á sig en fundust hvergi hjá skattinum. Karim hefur skráð sig aftur í tímann, líka Abdelmajid en er enn að svíkja allt fyrstu 7 mánuðina (hugsanlega verið á bótum) og ég finn Said hvergi. Þetta eru snarklikkaðir dúddar frá Marakkó þarna í efsta laginu í moskunni í Skógarhlíðinni fjármagnaðir af Saudí-Arabíu í gegnum öfgasamtök í Svíþjóð. Öryggisdeild ISAVIA er enn í dag að siga lögreglunni á mig í hvert sinn er ég birtist við KEF til að halda gengjunum rólegum. Verði ykkur að góðu. Kveðja, Friðrik Einarsson.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár