Trump segir að fjölmiðlar séu „ólöglegir“

Banda­ríkja­for­seti hélt ræðu í dóms­mála­ráðu­neyt­inu þar sem hann úrskurð­aði til­tekna fjöl­miðla ólög­lega fyrir að fjalla nei­kvætt um hann.

Trump segir að fjölmiðlar séu „ólöglegir“
Trump í kvöld Hélt ræðu fyrir þeim aðilum innan banda­ríska alrík­is­ins sem fara með lög­gæslu- og dóms­mál, þar sem úrskurð­aði frjálsa fjöl­miðla sem lög­brot. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í ræðu sinni í dóms­mála­ráðu­neyt­inu í kvöld að banda­rískir fjöl­miðlar sem fjalla gagn­rýnið um hann væru „ólög­legir“ og „spilltir“.

Trump sagði að CNN, MSNBC og ótil­greind dag­blöð „skrifa bók­staf­lega 97,6 pró­sent nei­kvætt um mig“ og bætti við: „Það verður að stöðva. Þetta hlýtur að vera ólög­legt.“

Í ræðu sinni fyrir sak­sókn­ara og full­trúa lög­reglu í dóms­mála­ráðu­neyt­inu lýsti Trump fjöl­miðl­unum sem „póli­tískum örmum Demókra­ta­flokks­ins. Og að mínu mati eru þeir í raun spilltir og ólög­legir. Það sem þeir gera er ólög­legt.“

Hann sagði að fjöl­miðl­arnir væru „að hafa áhrif á dóm­ara“ sem hann sagði að væri „í raun að breyta lögum“. Aftur kastaði hann rýrð á lög­mæti fjöl­miðla: „Og það getur bara ekki verið lög­legt. Ég trúi ekki að það sé lög­legt. Og þeir gera þetta í full­kominni sam­hæf­ingu hver við annan.“

Trump hefur gert árásir á banda­ríska fjöl­miðla að mið­punkti skila­boða sinna allt frá því hann var fyrst kjör­inn for­seti árið 2016.

Í Banda­ríkj­unum er prent­frelsi og tján­ing­ar­frelsi tryggt í stjórn­ar­skránni, en Trump kallar blaða­menn sem hann sam­þykkir ekki „óvini þjóð­ar­innar“ og afurðir þeirra „fals­fréttir“.

Frá því að Trump hóf sitt annað kjör­tíma­bil í jan­úar hefur hann hratt og örugg­lega þrýst á hefð­bundna fjöl­miðla eins og The Associated Press en um leið aukið aðgang áður jað­ar­settra hægri miðla að Hvíta hús­inu.

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Hjartarson skrifaði
    US sem þjóð þurfa að fara að hugsa sinn gang með að breita stjórnarskrá svo þeir sitji ekki uppi með svona viðrini sem forseta.
    3
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Trump er með þroska 12 ára barns. Auðvitað fékk hann kosningu. Við fylgjumst með hvithærðum embættismönnum krjúpa fyrir honum og hlæja að grimmdarverkum hans eins og brandara. Stjórnmálamenn eru smákrakkar í huga sínum. Allt þeirra líf snýst um að stjórna og deila. Lygarnar og prettirnir breyta kjósendur engu. Þeir fá kökusneið 🍰 að launum fyrir atkvæði sitt.
    5
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Trump hefur svipaða einræðisdrauma og ónefndir fasistar & nasistar síðustu aldar. Þetta er algjör vitfyrring! Það þarf augljóslega að stöðva manninn með einum eða öðrum hætti.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár