Úkraína þarf aukinn stuðning - ekki á morgun heldur í dag

Þrjú ár eru liðin frá alls­herj­ar­inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Leið­togar Evr­ópu­ríkja hitt­ust í Kyiv í vik­unni til að sýna sam­stöðu með Úkraínu eftir að Banda­ríkja­for­seti tók afstöðu með Rúss­landi í frið­ar­við­ræðum um fram­tíð Úkraínu. Óskar Hall­gríms­son skrifar frá leið­toga­fund­inum.

Úkraína þarf aukinn stuðning - ekki á morgun heldur í dag
Minntust þeirra sem voru drepin Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, ásamt for­seta­frúnni Olena Zelenska, eftir minn­ing­ar­at­höfn­ina á Maidan torgi sem haldin var fyrir leið­toga­fund­inn. Mynd: AFP

Þreytu­legur for­seti Úkraínu, Volody­myr Zelensky, tók á móti leið­togum frá 13 banda­lags­þjóðum, hverjum á fætur öðrum, í and­dyri Intercontinental-hót­els­ins í mið­borg Kyiv eftir að þau komu til baka frá minn­ing­ar­at­höfn á Maidan-torgi. Leið­togar ríkj­anna voru að minn­ast þeirra hund­raða þús­unda sem hafa fallið síðan alls­herj­ar­inn­rásin hófst þremur árum áður, 24. febr­úar 2022.

Við blaða­menn, um 100 manns, fylgd­umst með mót­tök­unni, sam­an­þjapp­aðir í ráð­stefnu­sal á annarri hæð hót­els­ins. Fjórir skjáir, einn á hverjum vegg, sýndu fund­inn þar sem leið­togar lásu yfir­lýs­ingar um stuðn­ing og vott­uðu úkra­ínsku þjóð­inni samúð – ásamt því að gefa lof­orð um stað­fastan stuðn­ing, þó með mis­jöfnum efn­is­legum skuld­bind­ingum.

 Tvenns konar ræður

Það var nán­ast hægt að skipta ræðum þeirra í tvo hópa: þau sem höfðu skýrt plan, fjár­mögnun og mark­mið – og hina sem sögðu ein­fald­lega: „Við erum með ykkur.“

Eftir að hafa síð­ast­liðin þrjú ár fjallað um stríðið í Úkraínu hef ég lært að þekkja efn­islitlar yfir­lýs­ingar, til­finn­inga­þrungnar og loft­ugar ræður þar sem engum beinum aðgerðum er lofað. 

Ef ég ætti að velja eina sem ein­hvers konar upp­á­halds væri það yfir­lýs­ingin: „Við erum með ykkur eins lengi og þarf.“ Oftast er þetta sagt í lok ræðu um evr­ópska sam­stöðu og erf­iða tíma, en sjaldan er spurt: Með okkur hvernig? Eins langt og hvað þarf?

Opið lof­orð um óskil­greindan endi.

Hins vegar má ekki gera lítið úr alvar­legum tón­inum á ráð­stefn­unni. Nær allir voru sam­mála um að Evrópa yrði að standa saman og tryggja eigið öryggi – jafn­vel óháð Banda­ríkj­unum, sem sendu ekki full­trúa í ár og kusu sama dag gegn ályktun Sam­ein­uðu þjóð­anna um að for­dæma inn­rás Rússa í Úkraínu.

Ursula Von der Leyen var full­trúi Evr­ópu­sam­bands­ins en einnig rödd margra þeirra þjóða sem áttu full­trúa á ráð­stefn­unni. Það var mark­vert að tungu­málið og tónn­inn var mun harð­ari inn á við en oft áður.

 Stærsta loforðið

Stærsta ein­staka lof­orðið kom frá for­sæt­is­ráð­herra Kanada, Justin Trudeau; 5 millj­arðar kanadískra doll­ara, stór vopna­send­ing og fjórir þjálf­un­ar­hermar fyrir F-16 orr­ustu­þotur, sem er gíf­ur­lega mik­il­vægt þar sem Úkraína er með tölu­vert fleiri F-16 þotur en flug­menn.

Þó nokkrir leið­togar tóku þátt í fund­inum í gegnum síma, en sumir komust ein­fald­lega ekki og sendu full­trúa í stað­inn. Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, komst ekki vegna ferðar til Banda­ríkj­anna, og Andrzej Duda, for­seti Póllands, var einnig fjar­ver­andi af sömu ástæðu. Hann fór til Washington í því skyni að hvetja Trump til að krefj­ast þess að Banda­ríkin gerðu engan „svika­samn­ing“ við Rússa eða Úkraínu.

Pólland hefur hingað til veitt Úkraínu mestan stuðn­ing allra þjóða þegar allt er talið saman – veitt millj­ónum borg­ara skjól. Frá fyrsta degi inn­rás­ar­innar hefur Pólland stöðugt aukið útgjöld til varn­ar­mála og mun pólski her­inn að öllum lík­indum verða stærsti land­her Evrópu árið 2026, á eftir Úkraínu.

Á leið­toga­fund­inumUrsula von der Leyen, Mette Frederik­sen, Kristrún Frosta­dóttir, og Pedro Sanchez á leið­toga­fund­inum í Kiyiv þann 24. febr­úar.

Norð­ur­löndin voru einnig stór hluti af ráð­stefn­unni og sendu öll full­trúa, þar á meðal Ísland.

Eins og fram kom í umfjöllun Heim­ild­ar­innar um ráð­stefn­una flutti Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra öfl­uga ræðu þar sem hún sagði: „Gildin sem Úkraína hefur barist fyrir eru gildin sem okkar þjóð hefur byggt til­veru sína á.“  

Ekki bara gildi, heldur einnig öryggi. Kristrún hélt áfram: „Því án virð­ingar fyrir alþjóða­lögum og alþjóð­legu reglu­bundnu kerfi væri öryggi lands eins og míns alvar­lega ógnað.“  

Við Íslend­ingar erum stofn­að­ilar að NATO og eina þjóðin án hers í sam­band­inu, og þar með und­an­skilin lág­marks­gjaldi til varn­ar­mála ólíkt öðrum ríkjum. Samt sem áður njótum við sömu verndar og aðrar þjóðir innan banda­lags­ins.  

„Gildin sem Úkraína hefur barist fyrir eru gildin sem okkar þjóð hefur byggt til­veru sína á
Kristrún Frosta­dóttir
á leið­toga­fund­inum í Kyiv

Land­fræði­leg staða lands­ins veitir okkur vissan skjöld en gerir okkur einnig að skot­marki. Ástæðan fyrir aðild okkar að NATO er sú að Ísland var í ára­tugi eins konar bens­ín­stöð fyrir flug­flota og vopna­send­ingar frá Banda­ríkj­unum. Kafbátar sigla í kringum landið allan árs­ins hring og við erum sam­skipta­mið­stöð fyrir stóran hluta af hern­að­ar­neti banda­lags­ins. Það er ekk­ert sem segir að óvina­her gæti ekki séð Ísland í sama ljósi og NATO gerir.

En, eru rúss­neskar her­sveitir að fara að sigla upp Faxaflóa í átt að Naut­hóls­vík? Líkurnar eru hverf­andi. En hér er margt sem NATO telur verð­ugt að vernda sem útskýrir hvers vegna við komumst upp með að verja aðeins 0,2% af lands­fram­leiðslu í varn­ar­mál. 

Þakklæti í verki

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, tal­aði eins og flestir aðrir leið­togar Evrópu um þakk­læti fyrir hetju­lega bar­áttu Úkraínu og hversu erfitt væri að koma því í orð. Hins vegar, sagði hún, að þau gætu sýnt þakk­lætið í verki.  

Danir eru fremstir á lista þjóða miðað við höfða­tölu þegar kemur að gjöfum til Úkraínu, bæði fjár­hags­lega og hern­að­ar­lega. Þeir hafa gefið allar stór­skota­byssur, stærstan hluta F-16 þotna, og halda áfram að styðja Úkraínu þar sem hægt er. Nú leiða þeir einnig sér­stakt fram­tak í að fjár­festa beint í úkra­ínskum vopna­iðn­aði – eitt­hvað sem við Íslend­ingar höfum ákveðið að taka þátt í.  

Hún hvatti allar evr­ópskar þjóðir til að auka stuðn­ing við Úkraínu – ekki á morgun heldur í dag. Hún lagði áherslu á að fjar­lægja allar sjálfsettar rauðar línur, stór­efla inn­lenda vopna­fram­leiðslu og fjár­festa beint í úkra­ínskri fram­leiðslu.  

Vopnahlé án þess að friður hafi verið tryggður myndi auka hætt­una fyrir Evrópu, ekki minnka hana. Það myndi aðeins gefa Rúss­landi tæki­færi til að bæta í vopna­búr sitt og ráð­ast aftur á Úkraínu – eða jafn­vel á annað nágranna­ríki.  

Tveir mánuðir til stefnu

Mette sagði að 3% væru ekki nóg – það þyrfti alvar­lega fjár­fest­ingu. Að hennar mati hefðum við um tvo mán­uði til að taka þessar nauð­syn­legu ákvarð­anir, ann­ars yrði það ein­fald­lega of seint.

Alex­ander Stubb, for­seti Finn­lands, sagði að Finnar hefðu ekki fengið að ganga í Evr­ópu­sam­bandið fyrr en Sov­ét­ríkin féllu. Hann minnti á að Finnland hefði tapað 10% af land­svæði sínu til Rúss­lands, þar á meðal svæðum þar sem bæði faðir hans og afi fædd­ust.  

Hann sagði skýrt að þetta sner­ist ekki um Úkraínu heldur um heim­inn sem sam­fé­lag. Ef Úkraína tapar, töpum við öll.  

Finnland, ásamt öðrum, leggur til að þrýst­ingur á Rússland verði auk­inn eins mikið og unnt er. Ákvörð­un­ar­valdið yrði fært aftur til Evrópu og tryggt að Banda­ríkin veittu bak­stuðn­ing. Allt skipu­lag um hvernig þessu verði háttað þarf að liggja fyrir áður en samið er um vopna­hlé.

Friedrich Merz, lík­legur næsti kansl­ari Þýska­lands, hefur eftir ummæli Banda­ríkj­anna síð­ustu daga lýst því yfir að Evrópa þurfi að öðl­ast sjálf­stæði frá áhrifum Banda­ríkj­anna. 

Hann hefur verið þekktur fyrir að vera tölu­vert stað­fast­ari þegar kemur að hern­aði en for­veri hans var og því lík­legri að veita bæði Úkraínu meiri aðstoð, veita hana fyrr og auka fjár­út­lát í Þýska­landi til varn­ar­mála til að ná því mark­miði.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    A clear expression of the Zeitgeist in the so-called European West: not once the word "diplomacy" is mentioned! What an irony that "diplomacy" now seems to be a prerogative of Washington and Moscow, China and the BRICS and the Global South!
    -3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hugur minn er alla daga í Úkraínu. Slava Ukraini.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár