Þakklátur fyrir að vera á lífi

Þorlákur Morthens, Tolli, hefur marga fjör­una sopið í lífs­ins ólgu­sjó. Æskuárin höfðu sín áhrif en þá byrj­aði hann að teikna og var ljóst að dreng­ur­inn væri gæddur hæfi­leikum. Óregla og veik­indi lit­uðu fjöl­skyldu­lífið og á ung­lings­ár­unum sá hann um sig sjálfur. Um ára­bil var hann sjó­maður, verka­maður og skóg­ar­höggs­maður. Eftir mynd­list­ar­nám hefur hann lifað af mynd­list­inni. Nú er Tolli far­inn að mála í ljós­ari tónum. Hann gaf nýra, greind­ist síðan með krabba­mein og sigr­aði.

Þakklátur fyrir að vera á lífi

Vinnu­stofa Tolla er fyrir utan borg­ina, þar sem nátt­úran er allt í kring og sjálf Esjan frek­ust. Það er því lík­ast að vera komin í lista­gall­erí, enda vinnu­stofan líka gall­erí. Tolla seinkar, en á vinnu­stof­unni er hávax­inn maður sem vinnur hjá honum tvo daga í viku. Hann er einn af mörgum fyrr­ver­andi föngum sem Tolli hefur kynnst. Í mörg ár hefur hann farið í fang­elsi lands­ins til að aðstoða fanga þar og eftir að afplánun lýkur. Meira um það síðar.  

Allir litir heims­ins virð­ast vera sam­an­komnir í þessu stóra rými á Esju­melum. Þetta er svo­lítið eins og að stíga inn í ævin­týra­heim. 

Lista­mað­ur­inn mætir, heilsar hlý­lega og býður til sætis. Talið berst að starf­inu sem hann hefur sinnt í rúma tvo ára­tugi með föngum og fyrr­ver­andi föngum.

„Ég var í 12 spora sam­tök­unum og var að sponsa mann sem hafði ungur verið dæmdur í fang­elsi fyrir morð. …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Sigurðsson skrifaði
    Ég er einn af þeim sem er svo lánsamur að eiga Tolla að. Hann er svo bóngóður og getur ekki sagt nei við neinn sem kallast minniháttar, það hef ég nýtt mér einu sinni í söfnun fyrir MND á Íslandi. Ég kinnti hann fyrir Dönskum vini mínum, Evald Krog, myndlistarsafnara, sem þegar í stað féll fyrir snilli Tolla, hann átti margar myndir Tolla, sem Tolli sagði að hann hafi "rænt" af sér, hann borgaði helst aldrei uppsett verð heldur prúttaði um alla hluti.
    Ég á þó ógæfu Tolla að þakka okkar fyrstu kynni. Þannig var að hann átti vini og vinkonur sem hann gat treyst á ef svengd eða vímuefnaþurð sótti að og hann gat þá farið með myndir til þeirra sem keyptu af honum myndir fyrir sanngjarnt verð. Ein þessara vinkvenna var amma konunar minnar. Hún var þannig gerð að allt sem maður gerði fyrir hana skyldi gert upp. Ég neitaði ætíð peningum og vildi ekkert en í eitt skipti þá fékk ég greitt fyrir vinnu og efni eitt stykki litla mynd eftir Tolla. (Reyndar er engin mynd eftir Tolla "lítil") Þessa mynd áttum við í mörg ár og svo hallaði undan fæti hjá okkur og þá var nú gott að eiga einn Tolla til að eiga fyrir einni afborgun af bankaræningja láni eða svo. Takk Tolli það munar víða um þig.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár