Alheimurinn heima

Leik­verkið Heim eftir Hrafnhildi Hagalín skilur eftir sig slóða af tilfinningum löngu eftir að sýningu lýkur líkt og stjörnuryk sem svífur um himin­geiminn, að mati leikhús­gagnrýnanda Heim­ild­ar­innar.

Ber ávallt ferskt á borð
Ber ávallt ferskt á borð Leik­hús­gagn­rýn­andi segir það alltaf vera spenn­andi sjá Margréti Vil­hjálms­dóttur takast á við ný hlut­verk enda beri hún ávallt eitt­hvað ferskt á borð. Mynd: Jorri.
Leikhús

Heim

Höfundur Hrafnhildur Hagalín
Leikstjórn Magnús Geir Þórðarson
Leikarar Leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Selma Rán Lima, Alma Blær Sigurjónsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjónsson

Leikmynd og búningar: Filippía I. Elísdóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson

Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson og Gísli Galdur Þorgeirsson

Þjóðleikhúsið
Gefðu umsögn

Kona kemur heim úr meðferð og fjöl­skyldan slær upp veislu. Eigin­maður, dóttir og sonur eru öll á nálum enda virðist brott­hvarfið hafa átt langan aðdrag­anda sem endaði næstum því með skelfingu. Hrafnhildur Hagalín snýr loksins aftur á leik­sviðið með nýtt leikrit í farte­skinu, Heim var frumsýnt í Þjóð­leikhúsinu síðastliðinn föstudag og leikstýrt af Magnúsi Geir Þórðar­syni þjóð­leik­hússtjóra.

Hrafnhildur hefur tilfinningu fyrir bæði formi og samtölum, enda fær höfundur. Eitt af hennar höfundar­einkennum er dans á mörkum raun­veruleikans. Fjöl­skyldan sem Heim hverfist um virðist dvelja í annarri vídd, fjór­menningarnir eru nafnlaus, samtöl á skjön og Harold Pinter felur sig á milli setninga þegar textinn er upp á sitt allra besta. Leyndarmál eru mýmörg en Hrafnhildur snýr upp á klisjur með viðbrögðum persóna við afhjúpun, fjölskyldu­meðlimir vita yfirleitt meira en þau gefa upp og viðbrögðin ekki endilega í takt við væntingar. Heim er ekki galla­laust leikverk, lausu þræðirnir nokkrir og meló­dramað …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár