Týndu Nike-skórnir og afsökunarbeiðni ráðherra

Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hringdi í skóla­meist­ara í fram­halds­skóla barna­barns síns eftir að skópar þess týnd­ist. Hún hefur nú beðist afsök­unar á afskiptum sínum.

Týndu Nike-skórnir og afsökunarbeiðni ráðherra
Félags­mála­ráð­herra Inga Sæland hafnar því að hafa minnst á stöðu sína í sím­tal­inu. Mynd: Golli

Í gær greindi Vísir.is frá því að Inga Sæland hefði hellt sér yfir skóla­meist­ara Borg­ar­holts­skóla fyrr í þessum mán­uði. Tilefnið hafi verið að að barna­barn hennar, sem stundar nám við skól­ann, hefði týnt skóp­ari.

Fréttin vakti mikla athygli, sögur af sím­tal­inu virt­ust hafa verið á margra vit­orði umræddum skóla. Samkvæmt mbl.is upp­lýsti skóla­meist­ar­inn tugi starfs­manna um efni sím­tals­ins við ráð­herr­ann.

Inga hefði minnst á áhrif sín

Í Borg­ar­holts­skóla má ekki ganga í skóm inn­an­dyra sem varð til þess að barna­barn félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra týndi svörtum striga­skóm af merk­inu Nike á göng­unum. 

Vegna þess að illa gekk að finna skóna hringdi Inga í Ársæl Guð­munds­son, skóla­stjóra Borg­ar­holts­skóla. Samkvæmt heim­ildum Vísis lét Inga í ljós óánægju sína með það að skórnir hefðu ekki fund­ist og sagð­ist hafa ítök í lög­regl­unni. Þá hafa skap­ast háværar umræður um hvort Inga hafi þarna verið að fara á skjön við siða­reglur ráð­herra.

Ársæll neit­aði að upp­lýsa fjöl­miðla um efn­is­tök sím­tals­ins þegar eftir því var leitað og bar fyrir sig hann væri bund­inn trún­aði. Hann stað­festi þó að það hefði átt sér stað. Svörtu Nike-skórnir fund­ust síðan fáeinum dögum eftir að þeir týnd­ust. 

„Ég biðst afsök­unar á því að hafa tekið þessa hvat­vísu ákvörðun“
Inga Sæland

Kynnti sig ekki sem ráðherra og bar fyrir sig fljótfærni

Inga neit­aði að ræða við fjöl­miðla um málið í gær, eða hrein­lega svar­aði ekki síma, en svar­aði fyrir sig að loknum fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrr í dag. Þar stað­festi hún að sím­talið hefði sér átt stað snemma í jan­úar og sagði það hafa verið í góðri trú. „Ég var að hringja sem Inga amma,“ sagði Inga og tók fram að hún hefði ekki kynnt sig sem ráð­herra, hún væri varla búin að átta sig á því að hún væri slíkur sjálf. 

„Ég hringdi í þennan góða mann sem amma, amman sem ég er, svona ekki alveg orðin með­vituð að ég væri orðin ráð­herra. Ég átta mig nátt­úru­lega á því að skyldur mínar eru ansi mikið öðru­vísi nú en þær voru þá, þrátt fyrir að ég ætli að reyna að vera sem mest af Ingu, sem kostur er, þótt svo að hún sé ráð­herra, þá hefði amman átt að telja kannski upp á 86 áður en hún tók upp sím­ann.“

Inga hafn­aði því að hún hefði minnst á sam­bönd sín við lög­regl­una eða áhrif sín í sam­fé­lag­inu í sím­tal­inu en tók undir að hún hefði verið ákveðin, eins og hún eigi að sér að vera. „Ég biðst afsök­unar á því að hafa tekið þessa hvat­vísu ákvörðun. Ég mun vanda mig betur og finnst miður að hafa mis­stigið mig svona snemma í ferl­inum.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Wasn't it all about good intentions that led to an error of judgement, an innocent mistake? Can t6he same be said about all "Teflon characters" in politics?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár