Góður leikari á ekki að geta gert hvað sem er

„Uppi hefur verið umræða hér á landi um mikilvægi nándar­þjálfa í kvik­myndagerð. Aðeins einn lærður nándar­þjálfi er starfandi á Íslandi,“ skrifar kvikmynda­fræðingurinn Kolbeinn Rastrick sem kynnti sér mikilvægi slíkrar þjálfunar – sem virðist vera hættu­legur skortur á.

Þörf fyrir nándarþjálfa?
Þörf fyrir nánd­ar­þjálfa? Kvik­mynda­gerð­ar­konan Elín Páls­dóttir og nemi við Háskól­ann á Bifröst hefur gert nánd­ar­þjálfun að rann­sókn­ar­efni í BA-rit­gerð sinni, Risa­eðlu­sýn á rétt­indi leik­ara: Hver er þörfin fyrir nánd­ar­þjálfa í íslenskri kvik­mynda­gerð? Mynd: Golli

Leikarar sem og kvik­myndagerðar­fólkhafa lýst yfir áhuga á aukinni þátttöku nándar­þjálfa í kvik­myndagerðar­ferlinu og telja flestir það vera jákvæða þróun. En ekkert krefur fram­leiðendur til þess að ráða nándar­þjálfa og er það því algjör­lega undir þeim einstaklingum sem hafa völdin komið hvort þeir fallist á ráðningu þeirra.

Öryggisventill fyrst og fremst

Kristín Lea Sigríðar­dóttir, eini nándar­þjálfi landsins, lýsir starfi sínu sem mjög mikilvægu og tvíþættu í viðtali sem birtist á RÚV í sumar. „Þetta er í rauninni öryggis­ventill fyrir leikara, fyrst og fremst. En ekki síður fyrir leik­stjóra, fram­leiðendur og í rauninni bara alla sem koma
að verk­efninu.“ Nándar­þjálfi, rétt eins og áhættu­atriða­leikstjóri, passar upp á að leikarar og þau sem eru fyrir aftan kvikmynda­tökuvélina séu meðvituð um tilætlanir hvert annars og tilgang þegar kemur að atriðum sem snúa að kynlífi, nekt, kynferðis­legu ofbeldi eða öðru sem
berskjaldar einstaklinga og gæti valdið óþægindum. Tilgangurinn er að gengið sé …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár