Fríhöfnin var með í auglýsingakaupum

Dóttur­félag ríkis­fyrir­tækisins Isavia er líklega einn stærsti aðilinn í Markaðs­ráði Kefla­víkur­flugvallar. Ráðið keypti eitt af dýrstu auglýsinga­plássum ársins um áramótin í því skyni að fá fólk til að vera lengur í flug­stöðinni. Vísbendingar eru um að stærsti hluti kostnaðarins hafi verið greiddur af Fríhöfninni.

Milljarða velta
Millj­arða velta Fyr­ir­tæki í flug­stöð­inni greiða til Mark­aðs­ráðs Kefla­vík­ur­flug­vallar í sam­ræmi við veltu. Frí­höfnin, dótt­ur­fyr­ir­tæki Isavia, velti lang mest af þeim fyr­ir­tækjum sem upp­lýs­ingar liggja fyrir um. Mynd: Golli

Fríhöfnin ehf., dóttur­fyrirtæki opinbera hluta­félagsins Isavia, er á meðal þeirra fyrir­tækja sem mynda Markaðsráð Kefla­víkur­flugvallar. Fyrir­tækið átti því aðild að kostun gerðar og birtingar auglýsingar fyrir Kefla­víkur­flugvöll fyrir Áramóta­skaup RÚV, sem er eitt af dýrustu auglýsinga­plássum á Íslandi ár hvert. Fulltrúi fyrir­tækisins hefur áður fullyrt að ekkert opinbert fé hafi farið í auglýsinguna. 

Veltutengd fjármögnun

Í svari við fyrir­spurnum Heimildarinnar hefur komið fram að markaðs­ráðið, sem stóð að baki auglýsinga­kaupunum, sé fjár­magnað af rekstrar­aðilum á flug­vellinum. Auk Fríhafnarinnar má þar meðal annars nefna 10-11, Epal, Elko og aðrar þekktar íslenskar verslanir en líka erlendu fyrir­tækin Lagardère og SSP sem sérhæfa sig í rekstri flugvallar­þjónustu. Hvert þessara fyrir­tækja greiðir til markaðs­ráðsins í samræmi við veltu. 

Engin leið er að nálgast upplýsingar um veltu megin­þorra fyrir­tækja af starfsemi á Kefla­víkur­flugvelli. Innlendu fyrir­tækin reka öll verslanir og þjónustu utan flug­vallarins og er reksturinn í Keflavík ekki aðgreindur sérstak­lega í …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár