Mun færa borgarstjóra gullsleginn undirskriftalista

Kristján Hálf­dán­ar­son, for­maður hús­fé­lags­ins í Árskógum 7, er þreyttur og dapur eftir anna­sama viku. Kristján fer fyrir hópi fólks sem krefst þess að fram­kvæmdir við Álfa­bakka 2A–2D, betur þekkt sem „græna gímaldið,“ verði stöðv­aðar.

Mun færa borgarstjóra gullsleginn undirskriftalista
Formaður hús­fé­lags og borg­ar­stjóri Kristján Hálf­dán­ar­son, for­maður hús­fé­lags­ins í Árskógum 7, og Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri ræddu stutt­lega saman í ráð­hús­inu í vik­unni. Mynd: Golli

„Það er búið að ganga á ýmsu og satt best að segja er ég orð­inn ansi þreyttur. En þetta er ekki búið enn,“ segir Kristján Hálf­dán­ar­son, ketil- og plötu­smiður og for­maður hús­fé­lags­ins í Árskógum 7. 

Kristján mætti ásamt nágrönnum sínum á borg­ar­stjórn­ar­fund í Ráðhúsi Reykja­víkur á þriðju­dag þar sem vöru­húsið sem rís við Álfa­bakka í Suður-Mjódd var helsta mál á dag­skrá. Mikið hefur verið fjallað um mál vöru­húss­ins í fjöl­miðlum, sem þekk­ist nú sem „græna gímaldið“ eða „græni vegg­ur­inn“ en vöru­skemman er jafnhá fjöl­býl­is­hús­inu og íbúð­irnar sem að henni snúa hafa tak­markað útsýni miðað við það sem var fyrir skemmstu. 

Græna gímaldið„Græni vegg­ur­inn“ reis á ógn­ar­hraða skömmu fyrir jól. Kristján átti alls ekki von á þessu, þrátt fyrir að hafa vitað af fram­kvæmd­unum um tíma. „Þeir voru nú frekar fljótir þegar grindin var komin upp að reisa klæðn­ing­una og þá sortn­aði manni bara fyrir augum. Þetta var ekki gott. Við áttum alls ekk­ert von á þessu.“

„Það er merki­legt hvað þau geta talað lengi um sama hlut­inn,“ segir Kristján, aðspurður hvað honum hafi fund­ist um fund borg­ar­stjórnar, þar sem sam­þykkt var að innri end­ur­skoðun borg­ar­innar muni gera ítar­lega stjórn­sýslu­út­tekt á skipu­lags­ferli fram­kvæmd­anna. Húsið sjálft er í eigu félags­ins Álfa­bakka 2 ehf. En Klettás ehf. og Eigna­byggð ehf. eiga hvort sinn helm­ing­inn í félag­inu. Hagar hafa svo samið um að taka húsið á leigu þar sem starf­semi Eldum rétt og kjöt­vinnsl­unnar Ferskra kjöt­vara mun fara fram. Hagar hafa sent frá sér til­kynn­ingu þar sem segir að félag­inu þyki „miður að bygg­ingin við Álfa­bakka 2 sem félagið hyggst leigja undir ákveð­inn hluta starf­sem­innar valdi óþæg­indum fyrir nágranna og hefur fullan skiln­ing á sjón­ar­miðum íbúa sem fram hafa komið eftir að bygg­ingin reis“. 

Kristján gefur lítið fyrir skýr­ingar Haga og segir þær í takt við útskýr­ingar allra sem að mál­inu koma. Allir eru sorg­mæddir og miður sín en eng­inn er til­bú­inn að axla ábyrgð. Hann hafi rætt við Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóra í ráð­hús­inu. „Hann var mjög sorg­mæddur yfir stöð­unni sem upp er komin. En það voru bara þessi týpísku svör póli­tíkusa, að hafa fullan skiln­ing á okkar sjón­ar­miðum. En þetta var voða almennt en ekki bein­línis með neinar lausnir, enda er hann ekki ein­ráður.“

Rætt við borg­ar­stjóraKristján og nágrannar hans ræddu við Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóra fyrir borg­ar­stjórn­ar­fund í vik­unni.

Dæmi um að fólk yfirgefi íbúðir sínar

Staðan hefur versnað frá því að vegg­ur­inn reis skömmu fyrir jól og dæmi eru um að íbúar hafi yfir­gefið heim­ili sín. „Fólk sem er í íbúðum sem eru með svalir sem eru upp við græna ferlíkið er mjög dap­urt auð­vitað og ein er flutt að heiman, til systur sinnar,“ segir Kristján. 

„Ég er skít­hræddur um það

Kristján kom á fót und­ir­skrifta­söfnun í byrjun vik­unnar þar sem þess er kraf­ist að fram­kvæmdir við Álfa­bakka 2A–2D verði stöðv­aðar. Alls hafa safn­ast rúm­lega 2.500 und­ir­skriftir en söfn­un­inni lýkur 24. jan­úar. „Svo átt­aði ég mig nú á því að við hjónin eigum 50 ára brúð­kaups­af­mæli 24. jan­úar þannig ég ætla að færa borg­ar­stjór­anum gull­sleg­inn und­ir­skrifta­lista,“ segir Kristján. Augljóst er að græna gímaldið á hug hans allan og hann er hræddur um að svo verði um langa hríð. „Ég er skít­hræddur um það. Ég held samt að borgin neyð­ist til að gera eitt­hvað en í hvaða formi það verður veit ég ekki. Borgin er nauð­beygð núna til að taka fyrir hvað  hægt sé að gera til að létta á okkur íbúum.“ 

Í fljótu bragði sér Kristján það ekki sem lausn að borgin kaupi upp íbúð­irnar. „En við von­umst til að það verði tekin ákvörðun um að stytta húsið þannig að sá hluti sem snýr beint að okkur hverfi.“ Hann á von á að það muni taka dágóðan tíma að leiða málið til lykta. „Ég er hræddur um að það komi ekki til með að ger­ast neitt rosa­lega stór­feng­legt. En ég bíð spenntur eftir því hvað ger­ist hjá borg­inni. Það á að vera fund­ar­her­ferð í þessum mán­uði. Þangað til mun ég safna und­ir­skriftum.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár