Hvað gerðist í Suður-Mjódd?

Hvernig getur það komið kjörnum full­trúum Reykja­vík­ur­borgar á óvart að stærð­ar­innar atvinnu­hús­næði rísi næstum inni í stofu hjá íbúum í Breið­holti? Svarið liggur ekki í augum uppi, en Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs borg­ar­innar, segir málið fremur frá­vik frá stefnu borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans um þétta bland­aða byggð fremur en afleið­inga hennar.

Hvað gerðist í Suður-Mjódd?
Stórhýsi Suður-Mjódd er nýtt upp­bygg­ing­ar­svæði í borg­inni. Stór­hýsið sem risið hefur við Álfa­bakka á und­an­förnum vikum hefur komið kjörnum full­trúum í opna skjöldu. Mynd: Golli

Suður-Mjódd í Reykja­vík er nú eitt umtal­að­asta svæði lands­ins, eftir að vakin var athygli á því að nýtt atvinnu­hús, ógn­ar­stórt og að flestra dómi frekar ljótt, stendur afar nærri nýlegu fjöl­býl­is­húsi á svæð­inu og blasir við út um glugg­ann hjá hluta íbúa. Byrgir þeim hrein­lega sýn.

Flest venju­legt fólk sér myndir, ekur eða gengur þarna fram hjá og skilur ekki hvernig þetta hefur gerst. Hvernig skipu­lag borg­ar­innar, sem á end­anum er á ábyrgð stjórn­mála­manna sem fá leið­sögn og leið­bein­ingar frá sér­fræð­ingum í skipu­lags­málum, getur leitt til svona útkomu.

Það gerir Sigurdís Jóns­dóttir, íbúi í næsta húsi við nýja stór­hýsið, Árskógum 7, ekki heldur. Hún býr í íbúð á vegum Búseta og var sú eina sem lýsti yfir áhyggjum af deiliskipu­lags­breyt­ingum á svæð­inu þegar verið var að breyta skipu­lagi svæð­is­ins við Álfa­bakka 2 og sam­eina þar fjórar lóðir í eina, árið 2022.

TeikningÞessi teikn­ing sýnir útlit húss­ins við Álfa­bakka 2. Hún var ekki komin fram þegar kjörnir full­trúar sam­þykktu deiliskipu­lags­breyt­ingar á reitnum árið 2022.

Í svörum frá emb­ætti skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar til Sig­ur­dísar var hins vegar bein­línis slegið á áhyggjur hennar og henni tjáð að nán­ast væri hægt að full­yrða að fimm hæða bygg­ing risi ekki á allri lóð­inni. Það er tækni­lega rétt, húsið er vissu­lega fimm hæðir, en bygg­ingin sem er risin er þó svipað há og fjög­urra hæða fjöl­býl­is­húsið sem þau búa í.

Í stuttu sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist Sigurdís ekki skilja hvernig svona nokkuð geti gerst. Hún og maður hennar fluttu í hús Búseta fyrir nokkrum árum, til þess að kom­ast í hús­næði með lyftu, en áður höfðu þau búið í lyftu­lausu húsi í Breið­holti. Nú sitja þau uppi með það að úr íbúð­inni þeirra, á efstu hæð­inni við Árskóga 7, sést varla yfir nýja atvinnu­hús­næðið. 

Fjórar lóðir sem seldust ekki stakar sameinaðar á ný

Húsið við Álfa­bakka 2 reis hratt á síð­ustu vikum, eins og stál­grind­ar­húsa er háttur, en upp­bygg­ing atvinnu­starf­semi á þess­ari lóð á sér langan aðdrag­anda. Fyrstu skipu­lags­til­lögur borg­ar­innar um athafna- og versl­un­ar­svæði í Suður-Mjódd frá árinu 2009 voru á þá leið að á þess­ari lóð myndi rísa hús af svip­aðri stærð og það sem nú er risið, en þó með tölu­vert meira upp­broti í hæð.

Hins vegar hafa þó nokkrar skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar á svæð­inu frá þeim tíma. Um hríð var horft til þess að lóðin yrði bútuð niður í fjórar stakar ein­ingar, Álfa­bakka 2a–2d. Bygg­ing­ar­réttur á þessum fjórum lóðum var boð­inn út árið 2019 án þess að nokkuð gilt til­boð bær­ist í neina þeirra. Síðan var bygg­ing­ar­rétt­ur­inn áfram aug­lýstur til sölu á vef borg­ar­innar eins og hver önnur hillu­vara. Það var svo ekki fyrr en í upp­hafi árs 2021 sem fjár­fest­inga­fé­lagið sem nú byggir stór­hýsið gerði samn­ing um lóð­irnar, sem var háður þeim fyr­ir­vara að skipu­lagi yrði breytt með þeim hætti að lóð­irnar fjórar yrðu sam­ein­aðar í eina og heim­ild veitt til þess að byggja þar eitt stærð­ar­innar hús.

Þetta var verð­mætur samn­ingur fyrir Reykja­vík­ur­borg, sem allt í allt fær hátt í millj­arð króna frá félag­inu sem er að byggja húsið fyrir bygg­ing­ar­rétt­inn og gatna­gerð­ar­gjöld. Mikil umræða hefur verið um þetta mál und­an­farna daga og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata og for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar, segir borg­ina enn vera að „reyna að botna það“ nákvæm­lega hvar var farið út af spor­inu varð­andi upp­bygg­ing­una og það sam­spil íbúða­byggðar og atvinnu­hús­næðis sem birt­ist nú í Suður-Mjódd. 

Spurð hvort borgin hafi gefið ein­hvern afslátt af sínum kröfum í skipu­lags­ferl­inu, vegna þeirra hags­muna sem borgin hafði af sölu bygg­ing­ar­rétt­ar­ins, seg­ist Dóra Björt, sem sjálf átti ekki sæti í umhverfis- og skipu­lags­ráði þegar skipu­lagið var til umfjöll­unar þar árið 2022, telja að það væri mikil ein­földun að nálg­ast málið með þeim hætti. Hún bendir á að það hafi ekki verið ný hug­mynd að þarna yrði ein stór sam­felld bygg­ing, sem myndi skerma af hávað­ann frá Reykja­nes­braut­inni. Þvert á móti hafi það verið upp­runa­lega nálg­unin í skipu­lag­inu.

Hins vegar telur Dóra Björt það bæði „skrítið“ og „sér­stak­lega ámæl­is­vert“ að þarna sé að rísa „mjög lítið sjar­mer­andi bygg­ing“ og risa­stór auður veggur.

„Það hefði verið hægt að forma bygg­ing­una öðru­vísi. Þegar þú ert með svona háa bygg­ingu þá er hægt að láta hana trapp­ast niður að byggð­inni og þá verður upp­lifun þín af bygg­ing­unni allt önnur. Formið á þak­inu hefur áhrif á það hvernig þú upp­lifir bygg­ingu, ef þú ert með hallandi þak upp­lifir þú bygg­ing­una lægri en hún er og þá upp­lifir þú ekki smæð þína jafn­mikla. Það er oft talað um þennan mann­lega skala og það er útfærslan, ásýndin, útlitið og sú upp­lifun sem þetta skapar sem er ámæl­is­vert og er stóra málið í þessu, að mínu mati,“ segir Dóra Björt.

SkipulagDóra Björt Guð­jóns­dóttir er núver­andi for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar.

Hún segir að eftir að athygli var vakin á bygg­ingu húss­ins við Álfa­bakka hafi hún farið að skoða skipu­lags­sögu svæð­is­ins og áttað sig á því að árið 2015 hafi fjöl­býl­is­húsið sem byggt var á vegum Búseta verið fært eig­in­lega alveg að lóð­ar­mörk­unum. Sú skipu­lags­breyt­ing hafi verið að frum­kvæði Búseta og alltaf hafi legið fyrir að á lóð­inni við Álfa­bakka 2 yrði atvinnu­hús­næði.

Í sam­tali við blaða­mann segir Dóra Björt að í borg­inni sé að byggj­ast upp blönduð byggð, með atvinnu­starf­semi og íbúð­ar­hús­næði innan hverfa. „Það eru kostir við að hafa atvinnu­starf­semi þarna. En það sem við sáum ekki fyrir var að þarna yrðu mögu­lega ein­hverjir þunga­flutn­ingar og þetta yrði vöru­skemma og þá ekki ein­hver lif­andi þjón­usta sem myndi gagn­ast hverf­inu. Þetta var eitt­hvað sem kom á óvart, því þegar það var talað um að þarna væri að hefj­ast upp­bygg­ing var okkur sagt að þarna væru að koma höf­uð­stöðvar Haga og mögu­lega ann­ars stór­fyr­ir­tækis, við bjugg­umst við að þetta yrði allt öðru­vísi bygg­ing,“ segir Dóra Björt.

Hún hefur und­an­farna daga látið eftir sér hafa að upp­bygg­ing­ar­að­ilar hafi of mikið svig­rúm, setja þurfi fram stíf­ari ramma til að vinna innan svo gæði byggðar séu tryggð. Hún hefur fundið fyrir því að það séu ekki allir sam­mála henni í því og sumir segi að það geti komið í veg fyrir að snjallir arki­tektar og hönn­uðir komi fram með góðar lausnir.

„En það þarf að tryggja ákveðin grunn­gæði og eins og staðan er í dag hefur verið rosa­lega mik­ill fókus á það um lengri tíma, í skipu­lags­málum á Íslandi, að ein­falda ferla og reglur. Það hefur verið mjög mikil umræða um það og mjög lítil umræða um af hverju regl­urnar skipta máli og hvaða reglur skipta máli og hvaða kvaðir skipta máli. Það er stundum látið eins og kerfið sé alltaf bara að reyna að flækj­ast fyrir og sé bara alltaf til vansa,“ segir Dóra, sem telur  „ótrú­lega nei­kvætt við­horf gagn­vart hlut­verki kerf­is­ins þegar kemur að upp­bygg­ingu“ á meðan að hlut­verk þess sé að tryggja gæðin og að hlutir séu gerðir fag­lega og almenni­lega.

Frávik frá stefnunni en ekki afleiðing hennar

Í fjöl­miðla­stormi und­an­far­inna daga hefur þroti þétt­ing­ar­stefn­unnar verið lýst yfir. Spurð hvort þetta mál rýri ekki trú­verð­ug­leika þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið varð­andi upp­bygg­ingu höf­uð­borg­ar­innar seg­ist Dóra Björt ekki viss um að þetta komi stefn­unni um bland­aða, þétta byggð við.

„Við viljum að borgin sé þannig að fólki líði vel. Ég horfi á þetta sem frá­vik af stefn­unni en ekki afleið­ingu af stefn­unni,“ segir hún og setur svo út á það sem upp­bygg­ing­ar­að­ilar við Álfa­bakka hafa sagt, að þeir hafi bara farið eftir skipu­lags­heim­ildum borg­ar­innar í einu og öllu.

„Það var bæði svig­rúm til að gera vel og gera illa
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir

„Það er alveg rétt að þeir brutu í sjálfu sér ekki gegn því sem var í skipu­lagi, en það var bæði svig­rúm til að gera vel og gera illa. Klárlega berum við ábyrgð á því þá og þurfum að end­ur­skoða þetta svig­rúm sem er gefið. Það er hægt að túlka það í mjög nei­kvæða átt eins og þetta er dæmi um, en það er líka hægt að túlka þetta í jákvæða átt og það er hægt að hafa glugga­setn­ingu og jákvætt umhverfi og góða teng­ingu við umhverfið. Það er hægt að leysa þetta vel innan þess skipu­lags sem þarna liggur fyrir en það var sann­ar­lega þannig að það var ekki gert og það er þá hægt að segja að við bæði viljum að upp­bygg­ing­ar­að­ilar hafi ein­hvern metnað og að bygg­ing­ar­reglu­gerð tryggi metn­að­inn,“ segir Dóra Björt.

Hún telur skrítið hve lítið hefur verið rætt um gæði byggðar og nefnir að fyrst á þessu ári hafi verið hreyf­ing í þá átt að koma skil­yrðum um birtu í hús­næði inn í bygg­ing­ar­reglu­gerð. „Mér finnst þetta vekja okkur til stærra sam­tals,“ segir borg­ar­full­trú­inn, sem kveður lobbí­ista í Samtökum iðn­að­ar­ins hafa staðið gegn slíkum breyt­ingum í átt til auk­inna gæða­krafna.

Álfa­bakkiDeiliskipu­lags­breyt­ingar á þessu svæði hafa verið tíðar frá því að skipu­lag fyrir Suður-Mjódd var fyrst sett fram árið 2009.

„Það er búið að vera að hlusta rosa­lega mikið á aðila sem eiga mikið undir í því að vera ekki að bæta við gæða­stöðlum eða kvöðum eða þessum hlutum. Það eru bara lobbí­istar sem standa með upp­bygg­ing­ar­að­ilum.“

„Mjög vont“ svar til íbúa

Eins og nefnt var í inn­gangi var blásið á áhyggjur íbúa við Árskóga 7 af fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu í skipu­lags­ferl­inu árið 2022, í svari frá verk­efna­stjóra hjá borg­inni. Spurð hvort það sé ekki baga­legt segir Dóra að segja megi að þetta hafi verið „svo­lítið óábyrgt svar“ því það hafi skapað hug­renn­inga­tengsl og vænt­ingar um lægra hús á reitnum sem svo hafi ekki verið upp­fylltar þegar nið­ur­staðan kom fram. 

Hún segir að þetta svar frá þáver­andi verk­efna­stjóra skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar hafi svo einnig kannski villt um fyrir þeim full­trúum sem tóku málið til umfjöll­unar. Tækni­lega megi færa rök fyrir því að svarið hafi ekki verið efn­is­lega rangt, þar sem svarið mið­að­ist við að bygg­ing­ar­heim­ild­irnar yrðu lagðar flatar yfir alla lóð­ina, en það hafi gefið allt aðrar vænt­ingar en síðan raun­gerð­ust. Það segir Dóra Björt vera „mjög vont“. 

Hlutverk starfs­manna skipu­lags­full­trúa sé nefni­lega bæði að veita íbúum upp­lýs­ingar og einnig kjörnum full­trúum, sem eigi að geta sett sig inn í mál og staðið vörð um hags­muni íbúa án þess að krafa sé uppi um að þau séu fag­lega menntuð á sviði skipu­lags­mála.

„Það er ábyrgð­ar­hluti að svara spurn­ingum og vanga­veltum á eins ábyrgan hátt og hægt er þannig að það sé bara gagn­sætt og að leik­maður úti í bæ skilji það á réttan hátt. Lyk­il­þáttur í þessu lýð­ræð­is­ferli er að upp­lýs­ing­arnar séu réttar og eins nákvæmar og hægt er. Mér finnst þetta svar mjög miður,“ segir Dóra Björt.

Vont fyrir traustið

Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir er for­maður íbúa­ráðs Breið­holts, en þar situr hún fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar og er einnig vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins. Hún segir að bæði íbúa­ráðið og hún sjálf hafi kallað eftir skýrri fram­tíð­ar­sýn um Mjóddina alla, ekki bara svæðið í Suður-Mjódd heldur líka Mið-Mjóddina og Norður-Mjódd, en á síð­ast­nefnda svæð­inu er mikil upp­bygg­ing íbúð­ar­hús­næðis fyr­ir­huguð á næstu árum.

ÍbúaráðSara Björg Sig­urð­ar­dóttir er vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og for­maður íbúa­ráðs Breið­holts.

Um upp­bygg­ing­una við Álfa­bakka og það sem birst hefur á und­an­förnum vikum segir Sara að þarna hafi orðið mis­tök, eng­inn vafi sé á því. „Það þarf að tryggja að svona ger­ist ekki aftur. Það er jafn­væg­is­list á milli íbúð­ar­hús­næðis og atvinnu­hús­næðis sem fer þarna for­görðum, því miður,“ segir Sara Björg. 

Eftir á að hyggja telur hún ein­sýnt að lóðin næst íbúa­byggð­inni hefði átt að vera tekin sér­stak­lega fyrir og þar hefðu skil­málar upp­bygg­ingar þurft að hafa mun skýr­ari ramma. Þetta mál sýni mik­il­vægi þess að setja fram heild­stæða fram­tíð­ar­sýn fyrir upp­bygg­ing­ar­svæðin í Mjódd­inni.

„Svona búta­saum­svinna er hættu­leg þegar þú ert kom­inn með svona mikið nábýli. Ég held að allir séu sam­mála um það að við viljum hafa öfl­ugt atvinnu­líf og blóm­lega þjón­ustu. Það er mik­ill styrkur að bjóða upp á atvinnu­lóðir í aust­ur­borg­inni, en þarna urðu dýr­keypt mis­tök. Þetta skapar van­traust á aðra upp­bygg­ingu líka,“ segir Sara, sem seg­ist strax sjá þess merki í umræðum á íbúa­síðum hverf­is­ins á net­inu.

„Það þarf að tryggja að svona ger­ist ekki aftur. Það er jafn­væg­is­list á milli íbúð­ar­hús­næðis og atvinnu­hús­næðis sem fer þarna for­görðum, því miður.
Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir
for­maður íbúa­ráðs Breið­holts

„Svona mis­tök geta verið erfið fyrir umræð­una,“ segir Sara. Það sé miður þar sem það sé brýn hús­næð­is­þörf í borg­inni og að mál sem þetta geti skemmt fyrir góðri vinnu sem hafi átt sér stað á öðrum upp­bygg­ing­ar­reitum.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár