Íbúar hafna Heidelberg með afgerandi hætti

Áætlanir Heidel­berg virð­ast fyrir bí eftir að íbúar í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus höfn­uðu skipu­lags­breyt­ingum sem nauð­syn­legar voru til að verk­smiðja fyr­ir­tæk­is­ins í bæj­ar­fé­lag­inu gæti risið.

Íbúar hafna Heidelberg með afgerandi hætti

Afgerandi meiri­hluti íbúa í Ölfusi höfn­uðu hug­myndun Heidel­berg um umfangs­mikla möl­un­ar­verk­smiðju í sveit­ar­fé­lag­inu. 70,5 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði í íbúa­kosn­ing­unni sögðu nei við áformum fyr­ir­tæk­is­ins en 28,5 pró­sent studdi þau. 12 íbúar skil­uðu auðu eða ógildum atkvæða­seðlum. Þetta kemur fram á vef sveit­ar­fé­lags­ins. 

Nið­ur­staðan er enn meira afger­andi en könnun sem Heim­ildin fékk Maskínu til að fram­kvæma á síð­asta ári, um afstöðu íbúa til upp­bygg­ing­ar­innar. Í könn­un­inni sögð­ust 44,7 pró­sent íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi vera mjög eða frem­ur and­víg­ir bygg­ingu möl­un­ar­verk­smiðj­unn­ar í bæn­um. Til sam­an­burð­ar eru ein­ung­is 19,3 pró­sent íbúa frem­ur eða mjög hlynnt­ir bygg­ingu verk­smiðj­unn­ar. 

Áætlanir Heidel­berg gengu út á að byggja verk­smiðju í Þor­láks­höfn til að mala móberg til útflutn­ings. Móbergs­muln­ing­inn á svo að nota í sem­ents­gerð.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár