Hægri sveifla unga fólksins

Mið­flokk­ur­inn var sig­ur­veg­ari Krakka­kosn­inga grunn­skóla­barna og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut flest atkvæði í Skugga­kosn­ingum fram­halds­skóla­nema. Fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga seg­ist finna fyrir hægri sveiflu, en Ólafur Þ. Harð­ar­son segir það ekki vís­inda­lega stað­fest.

Hægri sveifla unga fólksins
Sveifl­að­ist ungt fólk til hægri Ýmsir telja að við­horf ungs fólks til stjórn­mál­anna hafi breyst í aðdrag­anda kosn­ing­anna og margir hafi ákveðið að kjósa flokka á hægri væng póli­tíska lit­rófs­ins. Sér­fræð­ingar segja slíkar álykt­anir ótíma­bærar og að slík sveifla kæmi á óvart. Mynd: Golli

Ákosn­inga­vöku Mið­flokks­ins um helg­ina fagn­aði Sig­mundur Davíð nið­ur­stöðu Krakka­kosn­inga á RÚV, þar sem flokk­ur­inn vann afger­andi sigur á meðal grunn­skóla­barna með 25 pró­sent greiddra atkvæða. Í því sam­hengi sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son að fram­tíð flokks­ins væri björt. 

Nið­ur­stöður skugga­kosn­inga sem haldnar voru í fram­halds­skólum skömmu fyrir kjör­dag sýndu svip­aða sveiflu í átt að hægri flokkum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn fengu flest atkvæði í kosn­ing­unni, sam­tals um 55,9 pró­sent atkvæða. Þar á eftir kom Sam­fylk­ingin með 12,7 pró­sent atkvæða.

Sér­fræð­ingar sem Heim­ildin náði tali af vara hins vegar við því að of miklar álykt­anir séu dregnar út frá þessum mæl­ingum. Töldu flestir ótíma­bært að skera úr um hvort yngri kyn­slóðin hafi í raun sveifl­ast yfir á hægri væng stjórn­mál­anna. 

Niðurstöður bjagaðar vegna verkfalls

Tinna Isebarn, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga, sem ásamt Sambandi íslenskra fram­halds­skóla­nema skipu­lagði átaks­verk­efnið Ég kýs, seg­ist hafa fundið fyrir nokk­urri hægri sveiflu meðal ungs fólks …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár