Lifandi kappræður og lýðræðishátíð

Vikan fram að alþing­is­kosn­ingum verður við­burða­rík á vett­vangi Heim­ild­ar­innar. Leið­toga­kapp­ræður mið­ils­ins fara fram í Tjarn­ar­bíói 26. nóv­em­ber og sama kvöld verður blásið til lýð­ræð­is­veislu sem allir geta tekið þátt í. Kosn­inga­próf Heim­ild­ar­innar er orðið aðgengi­legt á vefnum.

Lifandi kappræður og lýðræðishátíð
Spyrlar Heim­ild­ar­innar Blaða­menn­irnir Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir og Aðal­steinn Kjart­ans­son munu stýra kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar klukkan 20 á þriðju­dags­kvöld. Mynd: Golli

Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fara fram í Tjarn­ar­bíói í Reykja­vík þriðju­dag­inn 26. nóv­em­ber og hefj­ast klukkan 20. Fyrir svörum sitja leið­togar flokka sem eru í fram­boði til Alþingis og mæl­ast með 2,5 pró­sent fylgi eða meira í áður­nefndri kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar og dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Spyrlar eru blaða­menn­irnir Aðal­steinn Kjart­ans­son og Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir. 

Líkt og í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar fyrir for­seta­kosn­ing­arnar á liðnu sumri verða áhorf­endur í salnum, en miða­sala á kapp­ræð­urnar fer fram á miða­sölu­vefnum Tix.is. Bein útsend­ing verður einnig frá kapp­ræð­unum á vef Heim­ild­ar­innar.

Miðasala fer fram hér: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar.

Lýðræðishátíð í Tjarnarbíó

Áður en kapp­ræð­urnar fara fram slær Heim­ildin upp sann­kall­aðri lýð­ræð­is­há­tíð í fremri sal Tjarn­ar­bíós, sem hefst kl. 18. Aðgangur að hús­inu er ókeypis og allir vel­komnir, en öll fram­boð sem mæl­ast með yfir 2,5 pró­senta fylgi í áður­nefndri kosn­inga­spá hafa fengið boð um að setja upp bás þar sem þau geta verið með varn­ing, kynn­ing­ar­efni og verið með full­trúa á staðnum til að ræða við gesti.  

Kosningaprófið aðgengilegt

Kosn­inga­próf Heim­ild­ar­innar er nú orðið aðgengi­legt. Tvær mis­mun­andi útgáfur af próf­inu eru í boði fyrir þessar alþing­is­kosn­ingar.

Í fyrsta lagi er það létt­út­gáfa, með 30 spurn­ingum, sem er í boði fyrir alla not­endur mið­ils­ins, en hins vegar er í boði áskrift­ar­út­gáfa af próf­inu. Hún er lengri, með 70 spurn­ingum og veitir svar­endum ítar­legri nið­ur­stöður en létt­út­gáfan. 

Hægt er að nálg­ast prófið hér á vef Heim­ild­ar­innar og reyndar einnig í gegnum slóð­ina kosn­inga­prof.is.

Kosn­inga­prófið gefur fólki færi á að spegla sín eigin við­horf til sam­fé­lags­mála við afstöðu ein­staka fram­bjóð­enda flokk­anna.

Mögulega hjálpar prófið ein­hverjum óákveðnum kjós­endum að gera upp hug sinn, en hægt er að glöggva sig á því hvernig fram­bjóð­endur svara spurn­ingum prófs­ins. 

Öllum fram­bjóð­endum í efstu fimm sætum fram­boðs­lista allra flokka í öllum kjör­dæmum hefur verið boðið að taka þátt í próf­inu.

Á nið­ur­stöðu­síðu prófs­ins fá svar­endur svo svör við því hvernig áherslur þeirra ríma við áherslur flokka og ein­staka fram­bjóð­enda í efstu sæt­unum í þeirra kjör­dæmi og um landið allt. 

Hægt er að taka Kosn­inga­próf Heim­ild­ar­innar fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2024 með því að smella hér.

Síðustu formannaviðtölin birt

Kosn­inga­prófið, kapp­ræð­urnar og lýð­ræð­is­veislan bæt­ast við aðra þætti í kosn­inga­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar. Í þessu tölu­blaði Heim­ild­ar­innar birt­ast sein­ustu for­manna­við­tölin sem blaðið birtir fyrir kosn­ingar. Ákveðið var að bjóða öllum for­mönnum flokka sem mælst hafa með yfir 2,5 pró­senta fylgi á lands­vísu sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar til við­tals í blöðum und­an­far­inna vikna.  Sami rammi hefur verið um öll við­tölin og dregið var um dag­setn­ingar birt­inga. 

Vert er að taka fram að for­menn tveggja stjórn­mála­flokka, Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks, afþökk­uðu boð Heim­ild­ar­innar um við­tal og um leið tæki­færi til þess að skýra stefnu sína og áherslur fyrir les­endum blaðs­ins.

Í blað­inu hefur einnig verið fjallað um helstu áherslu­málin í kom­andi kosn­ingum undir liðnum: Um hvað er kosið? Þegar hefur verið fjallað um hús­næð­is­mál, utan­rík­is­mál, heil­brigð­is­mál og geð­heil­brigð­is­mál, sem og verð­hækk­anir á mat­ar­körf­unni. Í næsta blaði, sem kemur út dag­inn fyrir kosn­ing­arnar, 30. nóv­em­ber, verður grein­ing á stefnu­málum flokk­anna.

Pressa og Pod blessi Ísland

Pressa, þjóð­mála­þáttur Heim­ild­ar­innar, er í beinni útsend­ingu á föstu­dögum klukkan tólf á hádegi og er aðgengi­legur áskrif­endum á vefnum. Alþing­is­menn og fram­bjóð­endur sitja fyrir svörum í Pressu fram að kosn­ingum. 

Hlað­varps­þátt­ur­inn Pod blessi Ísland, þar sem blaða­menn Heim­ild­ar­innar fara yfir stöð­una í stjórn­málum í aðdrag­anda kosn­inga, er svo aðgengi­legur á vef Heim­ild­ar­innar og öllum hlað­varpsveitum.  

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár