Kókómjólk og Óli K.

Rit­höf­und­ur­inn og blaða­mað­ur­inn Sólveig Jóns­dóttir svamlar í jóla­bóka­flóð­inu og segir frá því.

Kókómjólk og Óli K.
Bóka­há­tíð Stemn­ingin í Hörpu var nota­leg og margt að sjá.

Leift­ur­snöggt var sonur minn kom­inn með tvo sleikjóa, fimm pip­ar­kökur í vas­ann og kókó­mjólk í sitt­hvora hönd á Bóka­há­tíð í Hörpu síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Ég ætl­aði mér eitt­hvað að skakka leik­inn, en var rétti­lega bent á að þetta væri hátíð. Eftir það ákvað ég að leyfa honum bara að vera á beit í molum og bókum.

Í barns­legri bjart­sýni hafði ég ætlað mér að hlusta á nokkra upp­lestra og náði örstuttu broti af Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur sem var að hefja lestur úr bók­inni sinni, Þegar sann­leik­ur­inn sefur. Við Nanna unnum saman fyrir þónokkrum árum og hún er ein af áhrifa­mestu læri­m­æðrum mínum, bæði í matar- og texta­gerð. Sonur minn tog­aði mig í burtu áður en upp­lest­ur­inn hófst en ég náði þó að krækja í orðið „torf­bæjar­eró­tík“ sem mér finnst bæði fyndið og eitt­hvað sem mig langar ekk­ert sér­stak­lega til að hugsa mikið um, en bókin er mætt á nátt­borðið.

Rappið er dáið

Önnur fyrrum sam­starfs­kona, Jóhanna Sveins­dóttir, er mætt með sína fyrstu bók, ung­menna­bók­ina Hvíti ásinn. Ég fékk að líta yfir fyrstu drög að þess­ari sögu um það leyti sem við sátum tals­vert óléttar hlið við hlið, skrif­uðum texta fyrir aug­lýs­ingar í vinn­unni okkar og tókum að okkur óum­beðið að rappa stöku sinnum fyrir sam­starfs­fé­laga okkar sem kann að hafa verið í hljóm­sveit­inni Quarashi. Árin líða, rappið er dáið en Hvíti ásinn er kom­inn út og lofar afskap­lega góðu.

„Við keyptum afmæl­is­gjöf af Þórarni Eldjárn og kíktum við hjá Angústúru og flettum bók­inni Óli K“
Sólveig Jóns­dóttir

Fyrir nokkrum árum keyptu for­eldrar mínir fjár­vigt af for­eldrum Hörpu Rúnar Krist­jáns­dóttur. Þessu komumst við að eftir stutt spjall en sjálf er Harpa með­fram almennum bú- og rit­störfum rit­stjóri bóka­út­gáf­unnar Króníku sem sýndi afurðir sínar á Bóka­há­tíð­inni. Þar kennir ýmissa grasa en eðli okkar og máls­ins sam­kvæmt urðum við mæðgin spennt­ust fyrir sög­unni um Iðu kinda­stjörnu, koll­ótta gimbur sem langar í horn. Bókin er afkvæmi Sig­tryggs Bald­urs­sonar og Arndísar Gísla­dóttur, hnyttin og skemmti­leg og skap­aði áhuga­verðar umræður hér heima um kosti þess að ann­ars vegar vera koll­óttur og hins vegar að kæra sig koll­óttan þegar kemur að áliti ann­arra.

Keyptum afmælisgjöf af Þórarni Eldjárn

Stemn­ingin í Hörpu var nota­leg og margt að sjá. Sonur minn týnd­ist tvisvar en fannst aftur jafn­oft og fékk sér aðeins fleiri pip­ar­kökur til að kom­ast yfir mesta áfallið við að hafa tapað mér úr aug­sýn. Við keyptum afmæl­is­gjöf af Þórarni Eldjárn og kíktum við hjá Angústúru og flettum bók­inni Óli K. Meira en 12 ár eru liðin frá því að hug­myndin að henni kvikn­aði hjá höf­und­inum, Önnu Dröfn Ágústs­dóttur, eftir spjall við góða vin­konu sína, afastelpu Óla K. Sú hin sama býr ásamt fjöl­skyldu sinni við hlið­ina á okkur, svo okkur mæðginum þótti gaman að skoða þessa stór­merki­legu ljós­mynda­bók og ævi­sögu langafa besta vinar son­ar­ins, en sá heitir einmitt líka Óli K. Nýjar bækur eru skemmti­legar en það eru gamlar bækur líka. Alkíbía­des eftir Platon kom nýverið út á vegum nýstofn­aða bóka­for­lags­ins Ófelíu sem Hjalti Snær Ægisson á veg og vanda að. Þarna er kom­inn aðgengi­legur stökk­pallur inn í heim­speki Platons sem finna má í Bóksölu stúd­enta, einu bóka­búð lands­ins sem er með sér­staka hillu fyrir grísku og lat­ínu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár