Málsvörn gegn ómaklegum málalyktum

Fjármála­hrunið árið 2008 var hluti af alþjóð­legum vendi­punkti sem enn er til umræðu og greiningar. Með íslenska bjartsýni, æðruleysi og samstöðu að vopni fer forsætis­ráðherra Íslands frá þeim tíma, Geir H. Haarde, yfir sögu sína og atburði þá sem leiddu hann fyrir Landsdóm eftir að hafa staðið í brim­rótinu sjálfu sem hefði getað sökkt þjóðar­skútunni.

Ævisaga Geirs H. Haarde segir merkilega sögu – sem hann segir.
Ævisaga Geirs H. Haarde segir merki­lega sögu – sem hann segir. Mynd: Pressphotos
Bók

Geir H. Haarde - ævisaga

Höfundur Geir H. Haarde - ævisaga
Bjartur & Veröld
Niðurstaða:

Bjartur

Bókardómur: 3 1/2 stjarna

Gefðu umsögn

Ævisaga Geirs H. Haarde segir merkilega sögu. Hún er ítarleg og vandlega unnin. Bókin er mikil að vöxtum, 567 síður í 28 köflum sem skipt er í átta hluta auk inngangs og eftirmála. Nafna­skráin telur 15 síður og bókina prýða fjöldi ljósmynda úr einka­safni og fjöl­miðlum, mest Morgun­blaðinu. 

Skipta má sögunni í fjóra megin­þætti, þó bókin fylgi tímalegri röð æviskeiða. Fyrsti þáttur er hinn persónu­legi. Fjölskyldu­sviðið nær allt frá afa höfundar og forfeðra til afa og langafa hlutverks hans sjálfs nú. Annar þáttur er þróunar­svið, nám, alþjóðleg menntun, reynsla og störf, undirbúningsagan fyrir megin­hlutverkið. Þriðji þátturinn er ævistarfið á hinu pólitíska sviði lands­málanna. Þar flæðir megin­hlutverk höfundar úr aðstoðar­mennsku, í gegnum þingmanns­feril, og -formennsku í sjö ár sem lýkur með ellefu ára ráðherra­ferli. Fjórði þátturinn er síðan í tveimur hlutum, fjármála­hrunið og eftir­leikurinn með Lands­dómsmáli. Það er bæði reyfara­kenndur fjármála­hluti, milli­kafli um stjórnar­slit og dómsmáls­drama í lok ferils. 

…
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár