Hársbreidd frá tveggja flokka meirihluta

Sam­fylk­ingu og Viðreisn vantar eitt þing­sæti til við­bótar til að ná að mynda meiri­hluta í þing­inu, miðað við nýja skoð­ana­könnun Maskínu. Flokk­arnir bæta báðir við sig á milli kann­ana og mæl­ast með yfir 20 pró­senta fylgi. Sós­í­alistar mæl­ast stærri en Sjálf­stæð­is­flokkur í einu kjör­dæmi.

Hársbreidd frá tveggja flokka meirihluta
Upp Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar þok­ast upp á við í fyrsta sinn í nokkrum könn­unum Maskínu í röð. Flokkur Kristrúnar Frosta­dóttur for­manns mælist með 22,7 pró­sent fylgi. Mynd: Golli

Sam­fylk­ing og Viðreisn bæta við sig fylgi á milli vikna, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Sam­fylk­ing mælist með 22,7 pró­sent og Viðreisn 20,9, sem þýðir að flokk­arnir væru einu þing­sæti frá því að geta myndað saman meiri­hluta. Vísir greinir frá nið­ur­stöð­unum. 

Framsókn mælist með 5,9 pró­sent fylgi í könnun Maskínu og Sós­í­alista­flokk­ur­inn með slétt 5 pró­sent. Píratar eru undir þessum þrös­k­uldi og mæl­ast með 4,3 pró­sent og Vinstri græn með 3,1 pró­sent. Flokkur fólks­ins mælist með 8,8 pró­sent. 

Sjálf­stæð­is­flokkur mælist þriðji stærsti flokk­ur­inn með 14,6 pró­sent, sem er einu pró­sentu­stigi meira en í síð­ustu könnun Maskínu. Mið­flokk­ur­inn, sem var um tíma að mæl­ast yfir Sjálf­stæð­is­flokki, stendur í stað á milli vikna og mælist áfram með 12,6 pró­sent. 

Með 50 prósent fylgi í Reykjavík

Maskína birtir nið­ur­brot á könn­un­inni á vef sínum. Þar sést að Sam­fylk­ing og Viðreisn mæl­ast sam­an­lagt með yfir 50 pró­senta fylgi í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Flokkur fólksins þarf að komast í ríkisstjórn til þess m.a. að rétta hlut eldri borgara. Samfylkingin er ekki að fara að gera það. Gamlingjar nú er að greiða Flokki fólksins atkvæðið sitt ef þið viljið breytingar í skerðingunum!
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu