„Viljum ekki að Harpa verði umferðarmiðstöð“

Það hefur verið umdeild ákvörðun hjá hús­inu að láta gesti borga fyrir heim­sókn á sal­ernin í Hörpu. En fólk heim­sækir húsið af ýmsum ástæðum. Grein­ar­höf­undur spáir í lífið í hús­inu og ræðir jafn­framt við Hildi Ottesen Hauks­dóttur, mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóra Hörpu.

„Viljum ekki að Harpa verði umferðarmiðstöð“

Tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Harpa er í hugum margra ein virðu­leg­asta bygg­ing lands­ins. Þar eru flott­ustu tón­leik­arnir haldnir og fín­ustu ráð­stefn­urnar. Um 200.000 gestir sækja um 1.400 við­burði í hús­inu á ári hverju. Harpa er orðin eitt helsta kenni­leiti borg­ar­innar og einn mest sótti ferða­manna­staður lands­ins með um 1,2 millj­ónir árlegra gesta.

 Þegar húsið er heim­sótt á venju­legum degi má sjá fjölda fólks sitja þar í tröppum. Það vekur athygli að stór hluti þessa fólks virð­ist ekki vera að dást að hús­inu. Það er að horfa á sím­ana sína. Einn góðan veð­ur­dag mann­aði ég mig upp í að spyrja fólkið sem þarna var statt út í þessa hegðun. Vinaleg japönsk hjón um sex­tugt sögð­ust vera í hús­inu í annað skipti og þau kæmu út af fríu wifi-i. Þau væru að kíkja á frétta­miðla og senda skila­boð til barn­anna sinna. Mér finnst Harpa æði veg­leg umgjörð um síma­hangs en get …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár