Allir eru á Efninu

Líkams­hrollvekjan Efnið (The Substance) var frumsýnd hérlendis á kvikmynda­hátíðinni RIFF 28. september og hefur verið í almennum sýningum í Bíó Paradís síðan 10. október. Guðmundur Atli Hlynssonn kannaði málið og brá sér á myndina – sem hefur valdið yfirliði hjá einhverjum.

Demi Moore
Demi Moore „Efnið virð­ist vera kvik­mynda­sögu­legur við­burður hér­lendis “

 Efnið hefur vakið mikil viðbrögð hérlendis, sumir bíógestir ganga út af myndinni og nokkrir hafa fallið í yfirlið á sýningum. Þrátt fyrir þetta hefur myndin notið gríðarlegra vinsælda í Bíó Paradís.

Blóðug líkamshrollvekja

Efnið er svokölluð líkams­hrollvekja. Um er að ræða undir­flokk hryllings­mynda sem hverfast í kringum afbrigði­leika manns­líkamans. Aðrar þekktar kvik­myndir af þessu tagi eru til dæmis Flugan (1986) og Vídeódrome (1983) eftir David Cronenberg og Títaníum (2021) eftir Juliu Ducournau sem hlaut Gull­pálmann á Cannes-kvikmynda­hátíðinni árið 2021. Líkams­hrollvekjur reyna jafnan á þol áhorfenda; mikið er um nærmyndir af sárum, blóði, skurðum og afbrigði­legum líkams­hlutum. Öll höfum við misháan þröskuld fyrir slíkum viðbjóði.

Sunnudags­kvöldið 13. október féll kona í yfirlið og karlmaður fékk flogakast á sömu sýningunni á Efninu. Þá þegar hafði manneskja fallið í yfirlið á einni sýningu myndarinnar í Háskóla­bíói á RIFF.

„Hún er rosalega visual og gory á köflum. En þetta …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár